Valsblaðið - 11.05.1961, Síða 98
96
VALSBLAÐIÐ
1960—1961.
Sveinn Zoega, forni., tílfar Þórð-
arson, Grímar Jónsson, Andreas
Bergmann, Bjarni Bjanrason.
#
Hlíðarendanefnd
1956— 1957.
tílfar Þórðarson, form., Ólafur
Sigurðsson, Jóhannes Bergsteinsson,
Sigurður Ólafsson, Andreas Berg-
mann, Hrólfur Benediktsson, Bragi
Kristjánsson.
#
/ þróttahússnefndir
1957— 1960.
íllfar Þórðarson form., Ólafur
Sigurðsson, Jóliannes Bergsteinsson,
Sigurður Ólafsson, Andreas Berg-
mann, Hrólfur Benediktsson, Bragi
Kristjánsson.
1960—1961.
tJlfar Þórðarson, form., Jóliannes
Bergsteinsson, Sigurður Ólafsson,
Andreas Bergmann, Hrólfur Bene-
diktsson, Bragi Kristjánsson.
#
Húsnefnd
1956—1961
Grímar Jónsson, form., Jón Þór-
arinsson, Guðm. Ólafsson.
#
Félagsheimilisnefnd
1957—1959.
Andreas Bergmann, form., Magn-
ús Bergsteinsson, Frímann Helgason.
#
Vallar- og ræktunarnefndir
1957—1960.
Bragi Itristjánsson, formaður, Jón
Sigurðsson, Guðm. Ólafsson, Guðm.
Ingimundarson, Friðjón Friðjónsson.
1960—1961.
Bjarní Bjarnason, Jón Sigurðsson,
Guðm. Ólafsson, Guðm. Ingimundar-
son, Friðjón Friðjónsson.
Ólafur Jónsson vann að málningu og einnig Þorsteinn Sigurðsson
og Sigurður Þorsteinsson. Þá má geta þess að Sveinn K. Sveinsson
verkfræðingur hefur veitt mikilvæga tæknilega aðstoð við útreikninga
í sambandi við bygginguna.
Hér hafa raunar fáir einir verið nefndir, af þeim stóra hópi, sem
unnið hafa meira eða minna að byggingu hússins, og fómað tíma sínum
af áhuga og félagslegum skilningi. Erfiðið munu þessir menn, nefndir
og ónefndir efalaust telja sér fulllaunað, ef æskufólk Vals sýnir það í
verki við íþróttaiðkanir sínar, að það kann að meta þá aðstöðu, sem því
hefur verið sköpuð.
Vel á haldið.
Ef athugaðir eru reikningar, sem snerta Hlíðarendann kemur í ljósið
að það hefur ekki einungis verið unnið af dugnaði, heldur hefur ótví-
ræðrar hagsýni gætt í hvívetna, sem hefur haft það í för með sér, að
mannvirkin hafa orðið ódýrari en nokkurn hefði grunað. Til gamans
og fróðleiks fyrir þá sem þetta lesa, verður tekið upp úr reikningum
félagsins frá 1960 bókfært verð þeirra mannvirkja, sem reist hafa
verið á Hlíðarenda, en það er:
1. Félagsheimilið með húsbúnaði .... 92.557.76
2. Malarvöllur .......................... 127.231.05
3. Grasvöllur ........................... 285.410.89
4. íþróttahús ......................... 1.805.761.00
5. Svæðið ............................... 131.023.50
Þessar tölur tala sínu máli glöggt og ákveðið, og sanna að vel hefur
verið farið með fjármuni.
Fyrstu Hlíðarendanefndina skipuðu þessir menn: ólafur Sigurðsson
formaður. Ilólmgeir Jónsson, gjaldkeri, Bjarni Bjarnasonð Baldur Stein-
grímsson og Jóhannes Bergsteinsson og hefur hann því verið í nefnd-
inni frá byrjun eða í 22 ár.
íþróttahúsnefnd er nú skipuð þessum mönnum: Úlfar Þórðarson for-
maður, Sigurður Ólafsson, Jóhannes Bergsteinsson, Andréas Berg-
mann, Bragi Kristjánsson og Ilrólfur Benediktsson.
Fulltrúaráð Vals.
Um stofnun Fulltrúaráðs Vals, segir í fundargerðabók ráðsins á
þessa leið:
,,Á fundi, sem nokkrir áhugamenn úr Val héldu um félagsmálin, í
október 1945, lagði Frímann Helgason fram þá tillögu, að stofnað yrði
9 mann fulltrúaráð á aðalfundi þeim, er fyrir dyrum stæði. Skyldi
ráðið vera ráðgefandi aðili félagsstjórnarinnar á hverjum tíma, auk
þess skyldi það geta tekið upp mál og komið þeim á framfæri við
stjórnina. I ráð þetta yrðu valdir menn utan stjórnarinnar.
Fékk tillaga þessi góðar undirtektir og Frímanni falið að bera málið
fram á aðalfundi 13. nóvember.
Var tillagan síðan borin upp á aðalfundinum og samþykkt einróma
og kosin nefnd til að gera tillögur um starfssvið ráðsins. í nefndina
voru kosnir þeir Sigufður ólafsson, Sveinn Zoega og Frímann Helgason.
Tillagan, sem samþykkt var í málinu var svohljóðandi:
1. Aðalfundur Vals 1945 samþykkir að kjósa 9 manna fulltrúaráð,
er starfi í sambandi við stjórnina og aðstoðaði hana í meiriháttar
málum.