Valsblaðið - 11.05.1961, Síða 100
98
VALSBLAÐIÐ
1960—1961.
Valur Benediktsson.
#
Fulltrúi Vals í S.K.R.
1956— 1957.
Jakob Albertsson.
1957— 1958.
Einar Ágústsson.
1958— 1961.
Ingi Eyvinds.
#
Fulltrúar Vals í mótanefndum K.R.R.
1956.
Friðjón Friðjónsson,
Elías Hergeirsson.
1957.
Guðmundur Ólafsson,
Friðjón Friðjónsson.
1958.
Guðmundur Ólafsson,
Friðjón Guðbjörnsson.
1959.
Jón Þ. Jóhannsson,
Sveinn Kristjánsson.
1960.
Guðmundur Ólafsson,
Róbert Jónsson.
Murdo McDougall
hefur tekið miklu ástfóstri við Val, og
vill með Valsmönnum vera. Kom hing-
að fyrst fyrir 24 árum. Hvarf héðan
aftur. Kom enn á ný og hvarf. Undi
ekki fjærri íslandi, og er nú enn hjá
Val. Leikinn knattspyrnumaður, og
góður kennari ungra drengja, góður
félagi og mikill áhugamaður knatt-
spyrnu.
Á hinn bóginn kom það í ljós, að hinir eldri vildu gjarnan komast
í fulltrúaráðið og koma á fundi með gömlum samherjum og gera sér
grein fyrir málum félagsins hverju sinni og taka þátt í umræðum
um þau, var því stöðugt að fjölga í ráðinu og er svo ltomið nú að
nú er það orðið nokkurskonar „akademía“.
Á aðalfundinum 1957 voru samþykktar starfsreglur fyrir fulltrúa-
ráð Vals, eins og þær eru nú. Fara þær hér á eftir og sýna tilgang-
inn og tilhögun um val nýrra aðila í ráðið, ennfremur vald þess, sem
þá var allmikið aukið. Var það meira ráðgefandi áður, þar sem stjórn
og aðalfundur höfðu meira vald í tilteknum málum.
Starfsreglur Fulltrúaráðs Knattspyrnufélagsins Vals.
1. gr. Meðlimir í Fulltrúaráðinu geta þeir Valsmenn orðið, sem
starfað hafa vel um nokkurn tíma fyrir félagið, eru orðnir 30 ára og
hlotið samþykki % hluta löglega boðaðs Fulltrúaráðsfundar og %
hluta félagsstjórnar.
2. gr. Formenn félagsins eru sjálfkjömir í Fulltrúaráðið.
3. gr. Fundi skal halda svo oft sem þurfa þykir, þó aldrei færri
en sex á ári.
Fundi skal boða bréflega og geta fundarefnis ef hægt er.
4. gr. Á fyrsta fundi ráðsins eftir aðalfund félagsins skal kjósa 3
fulltrúa í stjórn, þ. e. formann, varafonnann og ritara. Allir fundir
skulu bókaðir.
5. gr. Stjórn Vals skal ávalt leggja fyrir Fulltrúaráðið, til sam-
þykktar öll meiriháttar áform stjórnarinnar sérstaklega allt það, sem
hefur eða getur haft verulega fjárhaglega þýðingu, svo sem bygg-
ingarframkvæmdir, kaup og sölu á eignum félagsins, utanferðir, heim-
sóknir erlendra liða og ráðningu fastra starfsmanna.
6. gr. Felli Fulltrúaráðið tillögur stjórnar getur hún skotið málum
til almenns félagsfundar og er úrskurður hans endanlegur.
7. gr. Ef fulltrúi mætir ekki eða boðar forföll í heilt ár, skal stjórn
ráðsins kynna sér fjarveruástæður hans og telji hún ástæðu til getur
stjórnin og Fulltrúaráðið samþykkt að veita honum lausn úr ráðinu.
8. gr. Breytingar á reglugerð þessari þurfa % hluta atkvæða á að-
alfundi félagsins. Þó verða þær áður að hafa hlotið meirihluta sam-
þykkt á Fulltrúaráðsfundi.
Samþykkt á aðalfundi 1957.
Á þessum 16 árum hefur ráðið tekið mörg mál til umræðu og komið
víða við, þó ekki beri mikið á störfum þess. Það sem mestu máli skiftir
er að ráðið hefur síðan það var stofnað, verið hverri stjóm styrkur
í starfi, og með tilkomu þess hefur Valur haft langtum fleiri af sínum
styrku stoðum í starfi og leik, nær sér og í snertingu við það sem
er að gerast á hverjum tíma í félaginu.
Fulltrúaráðið er þannig skipað í dag:
Agnar Breiðfjörð, Andreas Bergmann, Albert Guðmundsson, Axel
Gunnarsson, Baldur Steingrímsson, Bjarni Bjamason, Bragi Krist-
jánsson, Einar Bjömsson, Friðjón Friðjónsson, Frímann Helgason,
Grímar Jónsson, Guðbjörn Guðmundsson, Guðm. Guðjónsson, Gunnar
Vagnsson, Hólmgeir. Jónsson, Hrólfur Benediktsson, Hermann Her-
mannsson, Jóhann Eyjólfsson, Jóhannes Bergsteinsson, Jón Eiríksson,
Jón Sigurðsson, Magnús Bergsteinsson, Magnús Guðbrandsson, Magnús
Helgason, Ólafur H. Jónsson, Páll Guðnason, Pétur Kristinsson, Sig-