Valsblaðið - 11.05.1961, Blaðsíða 107
VALSBLAÐIÐ
105
Bindindismál.
I Val hafa oft verið menn, sem hafa veríð andvígis áfengisneyzlu,
og talið að það færi ekki saman, að neyta áfengis og iðka íþróttir.
Hefur stundum komið til róttækra aðgerða í þessu sambandi, því
Bakkus hefur ekki alltaf sneitt hjá Valsmönnum, frekar en öðrum.
Á árinu 1948 skipar stjórnin undirbúningsnefnd um bindindismálefni
innan félagsins. í nefndina voru skipaðir þeir: Andreas Bergmann, Sig-
urður ólafsson og Frímann Iielgason.
Var efnt til almenns félagsfundar í Verzlunarmannahúsinu um mál-
ið. Flutti Jón Sigurðsson læknir þar erindi um áhrif áfengis og var
erindið hið fróðlegasta. Á fundinum voru lagðar fram tillögur, sem
miðuðu að því að félagsmenn vöruðust víndrykkju og ennfremur að
hafa áhrif á alla framkomu ungra drengja, þannig að hún yrði sem
fáguðust og með sjálfsögðu siðgæði og kurteisi hver gagnvart öðrum.
í þessu sambandi voru eftirfarandi tillögur, sem nefndin hafði samið,
bornar upp:
1. Að leikmenn í fyrsta aldursflokki neyti ekki víns, tveim vikum
fyrir mót eða einstaka leiki, svo og meðan mót stendur yfir.
2. Að algert bindindi sé á íþróttaferðalögum innan Vals, þar til síðasti
leikur hefur verið leikinn.
3. Að í öðrum aldursflokki verði algert vínbindindi.
4. Að þeir piltar einir í 3. flokki, sem ekki reykja komi til greina í
kapplið.
5. Að á æfingum í fjórða flokki verði drengjum ekki þolað að hafa
í frammi ljótt orðbragð eða ósiðlega framkomu og leggur nefndin
til að vítt verði þegar í stað, þar sem brotið fór fram, með auka-
spyrnu eða vítaspyrnu.
6. Að allir þeir, sem mæta fyrir félagið á einhverjum vettvangi, séu
ekki undir áhrifum áfengis.
Tillögur þessar voru einróma samþykktar af fundannönnum, og
komu þegar til framkvæmda. Samþykkt þessi hefur ekki, að því að séð
verður, verið úr gildi numin, til þessa.
„Það er ekki gott að maðurinn sé einn.“
I ársskýrslu stjórnarinnar 1947 er getið ýmsra mála, sem stjórnin
hafði fjallað um á árinu og hljóðar g-liðurinn þannig: „Helga Helga-
syni falið að gera tilraunir að koma upp kvennadeild í handknattleik.“
Ekki verður séð í skýrslum hvernig „tilraunin“ tókst, en vitað er, að
uppfrá þessu fóru handknattleiksstúlkur að æfa og halda hópinn innan
félagsins.
Hér var þó sannarlega um merkilegt mál að ræða. Málum var þannig
komið, að Valur hafði „stofnað heimili“, en satt að segja vantaði
„húsmóðurina“ og það hefur sýnt sig síðan, að handknattleiksstúlk-
urnar hafa gengið um beina á Valsheimilinu og flutt þangað inn hlýju
hinnar góðu húsmóður. Hlutverk kvennanna mun þó frekar hafa verið
hugsað á vegum handknattleiksins.
I tilefni af bókuninni í ársskýrslunni 1947, er rétt að gefa Helga
Helgasyni orðið.
Um aðdraganda og stofnun kvennadeildarinnar í Val, segir Helgi
Helgason á þessa leið:
4.
Piltar þeir, sem heima hýrast,
hafa þörf á góíSri örfan;
dags er linnir dáÖ og önnum,
dýrleg kvöldin veitast höldum.
Þá er ungum gott aíS ganga,
gle^jast kunna í náttúrunni
eíSa í leik aíS láta hvika
limu stiríSa af dagsins byríSum.
5.
Sumir ganga saman lengi,
sólarlag unz endar daga;
kvöldin björtu kæta hjarta,
kveikja þrá hins göfga’ og háa;
njóta saman gleÖi gumar,
göfgast sál af vina málum;
hugsjón veríSur oft aíS oríSum,
áÖur byrgíS, er svaf í kyrrSum.
6.
Fagrir leikir fjöriíS vekja,
fjöriíS treystir afl og 'hreysti,
hreystin magnar frjálsan fögnuíS,
fögnuíSur ljómi, er æsku blóma;
Æskan lýsir björt í brosi,
brositS glaíSa samútS laíSar,
samúíS örfar áhug þarfan,
áhugi keppni vekur heppna.
7.
En í þessu öllu missist
aldrei úr sýn hin retta lina;
bakviíS sumargleÖi geymist
göfug þrá a?S marki háu.
Vefur sig inn í allt, er sannir
iíSka í næÖi félagsbrætSur,
hófstillt ást á leik og listum,
látin standa’ í skyldubandi.
8.
Félagsmönnum úti* og inni
OríSiíS Drottins heilagt vottar:
Bæði i leik og athöfn auki
andinn hreini dugnatS sveina.
Fagur söngur fjörgar unga,
frjóvgar mál, er vaka í sálu;
hepta sorg og svipta fargi
sigurljóð á félags-slóíSum.