Valsblaðið - 11.05.1961, Page 117
VALSBLAÐIÐ
115
KFUM Boldklub í heimsókn í annað sinn.
Á þessu sumri bar það mest til tíðinda innan Vals, að hingað kom
í boði Vals knattspyrnulið frá KFUM Boldklub í Kaupmannahöfn.
íþróttaleg samskipti við Dani höfðu ekki átt sér stað síðan 19S5, að
Valur var þar í heimsókn og má segja, að með þessu hafi Valur verið
að endurgjalda þá heimsókn og endurnýja kunningsskapinn. Var þetta
í annað sinn, sem félag þetta kemur hingað í heimsókn á vegum Vals,
en það kom 1933, eins og frá var sagt. í flokknum voru 20 manns og
voru þeir hér í 10 daga.
Bjuggu Danirnir í félagsheimilinu meðan þeir dvöldu hér og voru í
fæði á heimilum félagsmanna.
Þeir léku þrjá leiki í Reykjavík; einn við Val og varð jafntefli 1:1.
Þeir gerðu einnig jafntefli við KR 2:2, en töpuðu fyrir sameinuðu
liði Víkings og Fram 3:2.
Samningar voru gerðir, við Akranes, um að liðið léki þar einn leik
og er það í fyrsta sinn, sem erlendur flokkur leikur utan Reykjavíkur.
Vakti þessi ráðstöfun hiúfningu á Skaganum, meðal hinna áhugasömu
knattspyrnuunnenda þar. það skyggði heldur ekki á, að Akranesliðið
vann 2:1. Eins og venja er með erlenda knattspyrnumenn, var farið
með þá um nágrenni Reykjavíkur. Þó var brugðið útaf hefðbundinni
áætlun, þannig að farið var með þá í fjallgöngu frá Skíðaskála Vals
og yfir í Hveradali. Þótti Dönum mikið til fjailgöngu þessarar koma,
enda ekki vanir slíku í heimalandi sínu.
Afmælisár 1951. — Valur 40 ára.
Á þessu ári kemur nýr formaður til sögunnar, Jóhann Eyjólfsson,
kappliðsmaður um langt skeið og áhugasamur um félagsmál. Úlíar
Þórðarson heldur áfram að starfa í Hlíðarendanefnd, af lífi og sál.
Aðalatburður þessa árs var fertugs afmæli Vals, sem minnst var á
ýmsan hátt.
Var samsæti haldið í Sjálfstæðishúsinu í tilefni af afmælinu og
flutti Frímann Helgason minni félagsins. Voru og mörg ávörp og ræður
fluttar við þetta tækifæri.
Efnt var til hraðkeppnismóts í handknattleik í Hálogalandi, með
þátttöku meistaraflokka Ármanns, Aftureldingar, Fram, FH, lR, KR,
Vals og Víkings. Fór mót þetta hið bezta fram.
Skíðamenn Vals minntust einnig afmælisins með sérstöku afmælis-
móti við skíðaskálann 1. apríl. Var mót þetta innanfélagsmót, enda
hefur skíðaiðkun Valsmanna, alltaf verið skoðuð sem innanfélags-
skemmtun og samvera.
Á sjálfan afmælisdaginn 11. maí var opið hús fyrir alla á Hlíðar-
enda. Komu þangað margir gestir, tignir og óbreyttir sem árnuðu
Val heilla.
Skemmtifundir voru haldnir fyrir yngri flokkana um þetta leyti og
þeir eldri skemmtu sér líka við dans á heimili félagsins, í tilefni af
afmælisdeginum.
Knattspyrnumennirnir létu heldur ekki sitt eftir liggja og léku 15.
17. og 20. maí við grannana í Reykjavík.
I fjórða flokki var leikið við Þrótt, í þriðja flokki við Fram, í öðrum
flokki við Víking, fyrsta flokki við Hauka, og í meistaraflokki við hinn
gamla keppinaut KR.
Á afmælisári þessu var farið að móta alvarlega fyrir því, að einn
af stóru draumum félagsins mundi rætast, en það var bygging gras-
vallar. Árið áður hafði verið byrjað á byggingu hans og miðaði verk-
18.
Röskur vann hann verk sitt inni,
var í búÖ svo hreinn og prúíSur;
trúr sem gull hann gœtti aíS öllu,
gjörÖi, allt fljótt og lipur þótti.
Kurteis lund og hagvirk höndin,
hýrlegt bros um pyngjur losar
þeirra, er komu, kaup svo tamir
kusu sér þar í bú’S sem var hann.
1 19.
Vildi hann öllum vera hollur,
var og mál hans frásneitt táli;
traust því vann og verka sinna
veglegt hrós meíS dæmi ljósu.
Allt af hefur ósérhlíf inn
eitthvert (starf í hönd til þarfa,
kvöíSum sinnir samversk manna,
sífellt skjótur er til bóta.
20.
Ungur skildi’ aíS áframhaldiÖ
yrÖi bezt, svo gæfan festist;
alúÖ sýndi, í iÖju og reyndi
eftir megni skyldu’ aíS gegna;
fann þó oft atS eigin krafta
einatt brast, er sóttu fastast
tæliraddir heims, svo hræddur
hugurinn kvííSa fyllist strííSum.
III. ÞÁTTUR
Skapa í mér hreint hjarta, ó guð,
og veit mér af nýju stöðugan anda.
Veit mér aftur fögnuð þíns
hjálpræðis
og styð mig með fúsleiks anda
Sálm. Davíðs 51, 12.
21.
Sumarkveld, á sólar tjaldi
síðal þegar himin-vega
ljósin taka blí'S að blika,
blessuð mergtS á næturfertSum,
eitt sinn drengur er á götu
Eftir leik og hljóður reikar
langa króka, Ieynt því vaka
launmál þung í brjósti ungu.
22.
Engan kvaddi, er hann læddist
einn á braut frá förunautum;
var sem raddir vina hræddist,
verunnar naut á eyðibrautum.
Dimmdi’ atS húm og dvínatSi skíma,