Valsblaðið - 11.05.1961, Side 118

Valsblaðið - 11.05.1961, Side 118
116 VALSBLAÐIÐ Fyrstu gulldrengir Vals Sigurður Gunnarsson t. v. Pétur Svein- björnsson. SigurSur Marelsson Einn af yngri mönnunum, sem hefiir tekið á sig stjórnarstörf. Fyrst sem ung- lingaleiðtogi, og síðar í stjórn knatt- spyrnudeildarinnar. Hann lék á sínum tíma í öðrum flokki og þótt hann næði ekki langt í knattspyrnu, var það hann sem hélt liðinu saman og stjórnaði því, með góðum árangri. Árni Njálsson Harðskeyttur leikmaður og kraftmikill. Hefur leikið í landsliði íslands í knatt- spyrnu við ágætan orðstý. Leikið í mörg undanfarin ár í meistaraflokki Vals og náð góðum árangri í þjálfun kvenna- flokks Vals í handknattleik. inu vel áfram. þannig hafði hverju mannvirkinu eftir annað skilað áfram á liðnum árum, fyrir atbeina dugmikilla manna og gat Valur á þessu merkisafmæli litið með stolti yfir farinn veg með bjartsýni til framtíðarinnar. Afmælisrit var gefið út. í ritstjórn þess voru: Sveinn Zoega, Frímann Helgason og Úlfar Þórðarson. Handknattleiksstúlkurnar láta til sín taka. Allt brautryðjendastarf er erfitt og það gildir sama um að skapa góðan kvennaflokk. Það þarf sinn tíma. En með ástundun og elju yinn- ur hver og einn sigur að lokum. Þannig var það með kvennadeild Vals. Stúlkurnar héldu saman af áhuga þótt oft væri við erfið skilyrði að búa. Það líður þó ekki lengra en það, að árið 1951 fara þær að láta að sér kveða. Þær taka þátt í Hraðkeppnismóti Suðvesturlands í Engidal og unnu það. Var það fyrsti sigur stúlkna Vals, kærkominn og örf- andi fyrir flokkinn. þetta ár fer flokkurinn til ísafjarðar til þátttöku í íslandsmeistara- mótinu úti, og var Helgi Helgason, stofnandi kvennaflokksins, farar- stjóri. Kepptu stúlkurnar við Hörð og unnu, en töpuðu fyrir Vestra. Útaf móti þessu urðu mikil málaferli, þar sem mótið sótti frá Reykjavík annar kvennaflokkur undir nafni ÍBR. Stóðu málaferlin lengi og lauk með því að mótið var dæmt ógilt. Á árinu 1953 verða stúlkurnar svo Reyk j avíkurmeistarar. í félagslegum efnum hafa þær, allt frá stofnun kvennaflokksins, sett svip á félagslífið. Færeyjaför fyrsta og annars flokks. Á árinu 1951 kom fram sú hugmynd að vinna að ferð fyrir annan flokk til Færeyja, og urðu nokkur bréfaskipti milli Vals og Færey- inganna um þetta. Færeyingar vildu heldur fá fyrsta flokk Vals, en að ráði varð að fyrsti og annar flokkur færu sameinaðir 1 för þessa. I henni tóku þátt 20 menn og var hin skemmtilegasta ferð. Um för- ina segir Björgvin Torfason m. a. á þessu leið: „Með línum þessum vil ég aðeins drepa á síðustu utanför félagsins út yfir pollinn úr hópi hinna fullorðnu félaga, en það er Færeyjaförin, sem farin var í boði knattspyrnufélaganna HB og B36 í Þórshöfn og stóð frá 22. ágúst til 3. september 1952. Ferðast var með Dr. Alex- andrine bæði að heiman og heim. Alls voru leiknir fimm leikir í Færeyjum, þrír í Þórshöfn og einn í Trangisvág og einn í Klakksvík. Sigraði Valur í 4 af þessum 5 leikjum. Öll var för þessi í einu orði sagt bráðskemmtileg. Móttökur allar slíkar að vart verður á betra kosið. Gestrisni frábær og góðvild, vin- semd og vinarhugur í okkar garð með afbrigðum. Við bjuggum allir á heimilum hinna ýmsu knattspyrnumanna og vorum þar sannarlega bomir á höndum, og er við fórum, voru ýmsir okkar leystir út með gjöfum frá heimilunum, og munu tæplega hliðstæð dæmi finnast um slíka rausn og höfðingsskap. Auk þess sem Val voru sendar gjafir, m. a. stórt málverk frá Þórshöfn og stórar Ijósmyndir frá öðrum bæjum. Myndir þessar prýði nú félagsheimilið að Hlíðarenda. Ferðirnar milli bæjar og eyja voru mjög skemmtilegar. En sérstak- lega ber þó að minnast á förina að Kirkjubæ, en Kirkjubær í Færeyjum á sérstakan hljómgrunn í hugum Islendinga. Þar stóð íslenzk húsfreyja um áratugi við hlið hins færeyska bónda síns, Jóhannesar Patursson-
Side 1
Side 2
Side 3
Side 4
Side 5
Side 6
Side 7
Side 8
Side 9
Side 10
Side 11
Side 12
Side 13
Side 14
Side 15
Side 16
Side 17
Side 18
Side 19
Side 20
Side 21
Side 22
Side 23
Side 24
Side 25
Side 26
Side 27
Side 28
Side 29
Side 30
Side 31
Side 32
Side 33
Side 34
Side 35
Side 36
Side 37
Side 38
Side 39
Side 40
Side 41
Side 42
Side 43
Side 44
Side 45
Side 46
Side 47
Side 48
Side 49
Side 50
Side 51
Side 52
Side 53
Side 54
Side 55
Side 56
Side 57
Side 58
Side 59
Side 60
Side 61
Side 62
Side 63
Side 64
Side 65
Side 66
Side 67
Side 68
Side 69
Side 70
Side 71
Side 72
Side 73
Side 74
Side 75
Side 76
Side 77
Side 78
Side 79
Side 80
Side 81
Side 82
Side 83
Side 84
Side 85
Side 86
Side 87
Side 88
Side 89
Side 90
Side 91
Side 92
Side 93
Side 94
Side 95
Side 96
Side 97
Side 98
Side 99
Side 100
Side 101
Side 102
Side 103
Side 104
Side 105
Side 106
Side 107
Side 108
Side 109
Side 110
Side 111
Side 112
Side 113
Side 114
Side 115
Side 116
Side 117
Side 118
Side 119
Side 120
Side 121
Side 122
Side 123
Side 124
Side 125
Side 126
Side 127
Side 128
Side 129
Side 130
Side 131
Side 132
Side 133
Side 134
Side 135
Side 136
Side 137
Side 138
Side 139
Side 140
Side 141
Side 142
Side 143
Side 144
Side 145
Side 146
Side 147
Side 148
Side 149
Side 150
Side 151
Side 152
Side 153
Side 154
Side 155
Side 156
Side 157
Side 158
Side 159
Side 160
Side 161
Side 162
Side 163
Side 164
Side 165
Side 166
Side 167
Side 168
Side 169
Side 170
Side 171
Side 172

x

Valsblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Valsblaðið
https://timarit.is/publication/399

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.