Valsblaðið - 11.05.1961, Side 123
VALSBLAÐIÐ
121
og Ægir Ferdínandsson. Valur lék fjóra leiki í för þessari, tapaði tveim
og sigraði í tveim.
Miklu lofsorði luku Valsmenn á móttökumar í Þýzkalandi og gest-
risni alla. Ferðuðust Valsmenn um fögur héruð, skoðuðu íþrótta-
mannvirki, leikvanga, æskulýðsheimili, hús og hallir á vegum íþrótta-
hreyfingarinnar í Neðra-Saxlandi, og áttu varla nógu sterk orð til að
lýsa hrifningu sinni yfir því, sem fyrir augun bar. Á heimleiðinni var
komið við í London, þar kom til móts við flokkinn hinn þrautreyndi
Valsmaður, þorkell Ingvarsson, sem nú tók við aðalfararstjórn flokks-
ins, þar sem Gísli hafði orðið eftir í Þýzkalandi. I London gafst Vals-
mönnum tækifæri til að sjá leik milli Arsenal og Preston North End,
þar sem saman voru komnir um 60 þús. áhorfendur. ,,Mjög þótti okk-
ur gaman að sjá þessar kempur eigast við, en í liði hvors voru margir
mjög þekktir knattspyrnumenn, eins og t. d. Tom Finney úr Preston
og Holton frá Arsenal. Preston vann 2:1“ segir Björgvin ennfremur
í ferðasögu sinni. Frá London var haldið til Bishop Auchland, sem
er löng leið. Var þarna keppt. Um þetta segir Björgvin: „Lið Bishop
Auchland er mjög sterkt og vel þekkt um allt England. Þeir eru „ama-
tör“ sigurvegarar og hafa átt marga menn í enska „amatör“-lands-
liðinu og nú eru 5 þeirra í því. Dálítið fannst okkur það einkennilegt,
að dómarinn, sem er „international“ dómari, skyldi ekki reynast betri.
Margir áhorfendur, ca. 7 þúsund“.
Heim úr þessari skemmtilegu og viðburðaríku för var svo komið
13. september. Hinn 29. s.m. fór svo fram úrslitaleikur íslands-mótsins
milli Vals og KR, lauk honum með jafntefli 1:1, en það nægði til sig-
urs í mótinu og hlaut Valur 9 stig en KR 8.
Fkki leikur það á tveim tungum, að utanförin hefur átt sinn góða
þátt í þessum úrslitum Islandsmótsins. Undirbúningur allur og æfing-
ar undir förina og sú ráðstöfun, að hafa aðeins „eigin menn“, en
skreyta sig ekki með „lánsfjöðrum“, styrkti og efldi alla samheldni,
og varð sá aflgjafi er dugði, þegar á hólminn kom, hér heima.
Fyrir tilstilli Gísla Sigurbjörnssonar, forstjóra, gafst Val kostur á
að fara með II. flokk félagsins í keppnisferð til Þýzkalands haustið
1954 í gagnkvæmu boði. Flokkurinn lék fjóra leiki. Fyrst í Blanke-
nese og vann hann með fjórum mörkum gegn einu. Næsti leikur var
háður í Celle, við úrval úr sex knattspyrnufélögum þar. Endaði sá
leikur með sigri Celle 2:1. Þriðja leikinn lék flokkurinn í Bad Oldesloe
við úrval úr Holstein og vann hann með tveim mörkum gegn einu.
Síðasta leikinn léku drengirnir við Viktoria, eitt bezta lið Ilamborgar,
og unnu Valsmenn hann mjög glæsilega og verðskuldað með 5:1. Flokk-
urinn var mjög vel búinn knattspyrnulega undir þessa ferð, hafði
þjálfað af mikilli kostgæfni undir stjórn Frímanns Helgasonar, enda
búinn að vinna bæði Reykjavíkur- og íslandsmót áður en lagt var upp.
í heild var þessi ferð félaginu til hins mesta sóma.
Um för þessa rita þeir Páll Aronsson og Friðjón Friðjónsson ítarleg-
ar frásagnir í 45 ára afmælisritið. Páll segir frá undirbúningnum hér
heima, m. a. dvölinni í skíðaskála félagsins, æfingum þar og fjall-
göngum, sem var einn þáttur þeirra. þátttakendur greiddu kr. 150
mánaðarlega í ferðasjóð. Haldin var nákvæm skrá yfir æfingasóknina,
en alls fóru 19 piltar förina. Undirbúningsnefndin var skipuð þeim:
Frímanni Helgasyni, Björgvin Torfasyni og Guðmundi Ingimundar-
syni. Fundir voru haldnir með flokknum allan undirbúningstímann.
Lagt var af stað til Þýzkalands 11. september. Var þetta í fyrsta sinni
sem 2. flokkur íslenzkra knattspyrnumanna fór utan til keppni. Friðjón
28.
Gleðin beindi ungum anda
upp yfir mold til nýrrar foldar,
bak vi?S geima gutSs í himin,
góíSar verur þar sem eru.
Sá hann í myndum lífs á landi
Ijóma skýrSar engladýríSir,
son gutSs leit í ljósi hvítu
Lýsa sem sól hjá alvaldsstóli.
! 29.
Andans líf þá lýsti’ aíS efa
lokið var, og sérhver snara
fúin brast, og fjötrar leystust,
fyr sem lund hins unga bundu.
Frjáls hann var og fann a?S kjörin
fósturbarna guÖs til varnar
átti’ hann sér, svo ávalt bæri
á sér 'sterkur drottins merki.
30.
Leynt þá svall í ætSum öllum
undra þor, sem líf á vori
ólgar und fold í fræjum íhuldum,
frjóu vakin sólarklaki.
Þannig snortiÖ hafÖi hjarta
himneskt ljós, svo kærleiks rósir
öíSlast mættu í öllum háttum
ilmríkt líf í gleíSi og kófi.
IV. ÞÁTTUR
Sérhver, sem tekur þátt 1 kapp-
leikjum er bindindissamur í öllu,
þeir til þess að hljóta forgengi-
legan sigursveig, en vér ófor-
gengilegan.
1. Kor. 9, 25.
31.
Næsta kvöld í knattleiks hildi
kjörinn hann gjörÖist marksins
vörtSur,
Þolinn beiíS, er barst um svæíSi
bragíSfimt li?S í tryllings iÖu;
StóíS hann þar og strengdar voru
stæltar taugar, en glöggu auga
leit hann yfir hverja Ihreyfing,
hættu og vinning manna sinna.
32.
Fimur aÖ verki varíSi’ hann markitS,
vitSbragíSs haríSur orku’ ei sparÖi;
hátt hann stökk og hlíftSist ekki,
hnöttinn oft því greip á lofti.