Valsblaðið - 11.05.1961, Qupperneq 129
VALSBLAÐIÐ
127
Deildaskifting.
Á árinu 1959 voru enn gerðar miklar breytingar á starfsháttum félags-
ins. Ný lög voru samþykkt fyrir félagið, þar sem mælt er fyrir um
skiftingu félagsins í deildir eftir íþróttagreinum, en hver deild skal
lúta sérstakri stjórn, en þær síðan sameiginlega aðalstjórn félagsins,
sem er æðsti aðili í málefnum þess, milli aðalfunda, svo sem það er orð-
að í hinum nýju lögum. Tillögur þessar sem voru þær róttækustu, í
sambandi við skipulag félagsins, er fram höfðu verið bornar allt frá
stofnun þess, voru ræddar á tveim fundum og síðan samþykktar og
tóku þegar gildi. Stofnfundir deildanna voru síðan haldnir og kosnar
stjórnir. En alls voru stofnaðar þrjár deildir. Ifandknattleiksdeild og
formaður hennar kosinn Jón Kristjánsson. Knattspyrnudeild þar var
Ægir Ferdínandsson kjörinn formaður og loks Skíðadeild, sem kaus
Guðmund Ingimundarson formann sinn. Skoðanir voru dálítið skiftar
um svo stórt stökk í einu sem deildarskiftingin óneitanlega var, en
langsamlegur meirihluti félagsmanna vildi taka skrefið út til fulls,
enda var þetta samþykkt með yfirgnæfandi meirihluta. Þeir, sem vildu
breytinguna sögðu m. a.: „Það sem hefur gefizt vel hjá öðrum, ætti
að gefast vel hjá okkur“. Enda leikur það ekki á tveim tungum, að þetta
fyrirkomulag hefir frá upphafi gefizt vel, skapað fjölbreytni í starfið,
gefið fleiri félögum tækifæri til að láta að sér kveða við félags- og
deildarstörfin. Það er sjálfsagt að reyna nýjar leiðir, eins og einn félag-
inn sagði, er rætt var um þessa nýbreytni, og annar bætti við: Það
verða allir að vinna saman, og hér er vissulega mergurinn málsins, hér
er það samstarfið og samvinnan, sem gildir fyrir framtíð deildanna.
framtíð Vals.
Á árinu fór handknattleiksflokkur karla og kvenna keppnisför til Fær-
eyja; var förin farin í ágústmánuði. Fararstjóri var Jón Kristjánsson og
Valur Benediktsson honum til fulltingis. Ferðin tókst mjög vel í alla
staði. Móttökur eins og fyrri daginn hinar glæsilegustu og gestrisnin
mikil. Þátttakendur voru 27 og lék flokkurinn alls 14 leiki, vann 13
þeirra en gerði eitt jafntefli.
I skýrslu stjórnarinnar á aðalfundinum 1960, sem var fjölrituð, svo
sem verið hafði hin síðustu ár, segir svo um starfsemi hinna ýmsu
deilda, en þetta var fyrsta árið sem reynsla var fengin af skipulags-
breytingunni, þ. e. deildarskiptingunni.
Frá starfi deildanna.
I skýrslu stjórnar knattspyrnudeildar, er getið æfinga og þjálfunar,
fundahalda og skemmtana, ferðalaga og loks þátttöku í mótum. Alls
sendi Valur fram 10 lið til keppni í 30 mótum, og á árinu léku 190 leik-
menn á vegum Vals. Alls voru skoruð 230 mörk gegn 177. Valur átti einn
leikmann í landsliðinu, Árna Njálsson, ennfremur nokkra í úrvalsliðum.
Aðalþjálfari yngstu flokkanna var Murdo Mac Dougall. Haukur Gísla-
son þjálfaði III. fl. svo sem verið hefur undanfarin ár, en Geir Guðmunds-
son II. fl. Með meistara- og I. fl. var Karl Guðmundsson, meðan æft var
innanhúss, en Hermann Heimannsson, eftir að útiæfingar hófust.
Af flokkum félagsins stóð 5. fl. A sig lang bezt, varð sigurvegari
bæði í Reykjavíkur- og Islandsmóti og annar í Haustmótinu. Þá sigraði
4. fl. einnig í íslandsmótinu og 2. fl. B í miðsumarsmótinu. Á árínu var
mikil og árangursrík rækt lögð við knattþrautir KSÍ. Átta piltar unnu
til gullmerkis sambandsins, 15 hlutu silfurmerkið og 28 bronzmerkið,
38.
Átti þó Trausti ýmsa kosti,
oft þó kátur vœri úr máta,
trúr í raun hann reyndist vinur,
rétt ef var aíS honum fariíS.
Horn £ sfðu’ hans hafa náðu
helzt of margir, svo aíS argur
einatt var?S !og af því geríSist
ódœll mjög og hlýddi’ ei lögum.
39.
Þetta kvöld hann þótti baldinn,
þung því hlaut hjá keppinautum
or$S aíS heyra, a’S hann vœri
allra mesti voÖa gestur;
einn þó heldur verja vildi,
væg'Öaror'Ö lét falla’ af boríSi;
bera tók £ bætifláka
bezt fyrir dreng hjá reiíSu mengi.
Máls- er -svara sinn á förum
sá og einan ganga í leyni
útúrkrók, hann kaus og líka
kyrran veg aíS fara þegar;
þannig kom í tækan tíma
Trausti og ná'ði vini brátSum,
saman lengi sveinar ganga
sortatjaldi nætur faldir.
V. ÞÁTTUR
Svo er og ef einhver fer að
keppa í leikjum, verður hann
ekki krýndur nema hann berjist;
löglega.
2. Tím. 2, 5.
41.
Mál hóf Trausti: „Má ég, bezti,
með þér hér á gangi vera
litla stund, ef ljúft þú fyndir
leiðum þín mér gæði að sýna?
Þegar áðan oríSi góðu
að mér trylldum beina vildir,
var sem hjarta hefði snortið
hönd þín mjúk og gjört mig sjúkan..
42.
Vegna þín ég víst skal reyna
vel að stilla skapið illa,
ef þú reynast vilt mér vinur,
vænti’ ég þá a?S sigri’ eg nái.
Aform góíS þótt gleymist tíðum,
gjör mig ei sekan aftur reka,
hina þrátSu þolinmæði
þrjóta of brátt ei, vinur, láttu**.