Valsblaðið - 11.05.1961, Page 130
128
VALSBLAÐIÐ
43.
Hinn þá Trausta höndu þrýsti,
horfíSi í von til mannsins sonar,
hans sem barg þeim mæddu mörgu,
miskunn sýndi föllnum, týndum,
ba<S hann fyrir bróíSur dýrum
aíS blessun mætti’ af þessum hætti
hljótast gó’Ö, svo bætur byíSust,
batna hryggtS og sjatna styggÖir.
44.
Mælti síðan sveinninn prúði:
,,SjáÖu, Trausti, þú ert hraustur,
snarpur í vinnu, vel a?S manni,
víst þú getur dugaÖ betur.
Eitt þó held ég helzt þér valda
hættum muni og angurs-stunum,
nema list þá lærir bezta,
er lífsins streytu í sigur breytir.
45.
Ei ertu frjáls, því haldinn helsi
hvata þinna ertu aíS sinni,
oft aíS morgni gott þú girnist,
gjörir heit a?S vel þú breytir;
eru oft týnd þó innan stundar
áform hrein, á þrek ef reynir,
í glötSum leik, er girndir vaka,
gengur illa skap atS stilla.
46.
Hugarsjón ég sá mér skína
sííSast í kvöld í leikjum völdum;
leit ég í gegnum leikinn bragna
listum týgjaíSa veröld nýja.
Leikur er mynd af lífi stundar,
lærdóm bak vitS sjá má spakan.
Leikur er skóli atS læri halir
atS lifa rétt og foríSast pretti.
47.
Leikurinn kennir list þá mönnum,
limum teitir vel aíS beiti,
reikni út metS auga, aÖ fótum
ávalt sæti bragtSi mætu.
Ekkert fum má svinnum sæma,
Sé æ ró í kappi fróu,
rósamt ge?S á markiíS miíSar,
mun sú stilling kenna snilli.
48.
Bæ'ði’ í leik og lífi vekur
listin fegurÖ alla vega,
glæÖir nautn og göfgar metnaíS,
gleíSur sál og eyíSir prjáli,
eða samtals 51 drengur. Þá náði Ragnar Ragnarsson næst beztum ár-
angri í knattþrautum á unglingadegi KSÍ. Ragnar er í 3. fl. Fyrstu
gulldrengir Vals voru sæmdir bikurum, en þeir eru: Pétur Sveinbjöms-
son og Sigurður Gunnarsson. Ferðalög voru mikil á sumrinu. Leikmenn
I. deildar fóru til Akraness, Akureyrar og Keflavíkur, ennfremur var
farið til ísafjarðar og 2. fl. fór til Vestmannaeyja, en 3. fl. til Akur-
eyrar og Vestmannaeyja. Þá fór 4. og 5. fl. sameiginlega fimm daga för
um Norðurland, auk þess kepptu þessir flokkar bæði í Keflavík og
Akranesi og fóru einnig í Vatnaskóg, til keppni við drengi, sem þar
dvöldu á vegum KFUM.
I samvinnu við aðalstjórnina hefir verið unnið að því að koma á
skiptiheimsóknum fyrir 2. fl. við félög á Norðurlöndum. öll líkindi
eru til, að þetta muni takast við Lyngby Boldklub í Danmörku, og lið
þaðan skipað 2. fl. piltum komi hingað næsta sumar, en Valspiltar
fari utan síðar. Þá á Valur samkvæmt áætlun KRR vorheimsókn árið
1961 og er unnið að því að fá hingað úrvalsflokk og í því sambandi rætt
um Schalke 04, mjög gott þýzkt lið. En til þessarar heimsóknar þarf vel
að vanda með tilliti til 50 ára afmælisins. Þá hafa verið uppi bréfa-
viðskipti við Stanley Matthews, þann heimsfræga knattspyrnukappa,
um að hann kæmi hingað og léki tvo til þrjá leiki með Val. Þá mun 3.
fl. fara utan á vegum KFUM í Kaupmannahöfn.
Haldið var uppi reglulegum skemmtifundum með meistara- 1. og 2.
fl. annan hvorn föstudag frá áramótum til júlíloka. Þá efndi 3. fl. einn-
ig til slíkra funda, hvern miðvikudag, en hjá 4. og 5. fl. voru skemmti-
fundir annan hvorn sunnudag. Um áramótin hélt deildin dansleik í
Breiðfirðingabúð í fjáröflunarskyni.
í skýrslu Handknattleiksdeildar segir m. a. frá því að deildin hafi
tekið þátt í nær tveim tugum móta með á annað hundrað þátttakend-
um. Annar fl. kvenna varð sigurvegari í Reykjavíkui’mótinu innanhúss.
Samkvæmt skýrslum HKRR hafa handknattleiksflokkar Vals skorað
alls 536 mörk gegn 529 á árinu. Hafa þá sameiginlega 7 mörk í ágóða
eftir ,,vertíðina“. Auk þess, sem nú hefir verið minnst á í sambandi
við þátttöku í mótum, var tekið þátt í afmælismótum FH, Þróttar og
KR. Þjálfarar voru þeir Valgeir Ársælsson og Jón Þórarinsson í 1. og 2.
fl., Sveinn Kristjánsson í 3. og 4. fl. karla, með aðstoð þeirra Gylfa
Hjálmarssonar og Magnúsar Ólafssonar, en Þráinn Haraldsson og Jó-
hann Gíslason æfðu meistarafl. kvenna og 2. fl. Auk þessara æfinga
sóttu piltar tíma til Benedikts Jakobssonar í þol- og þrekþjálfun. Áður
en fráfarandi stjórn skilaði af sér störfum hafði hún ráðið þjálfara^
málum flokksins til lykta, þannig að nú annast æfingarnar þeir: Valgeir
og Benedikt í meistara- 1. og 2. fl., Sigurhans Hjartarson 3. fl., Her-
mann Guðnason 4. fl. Farið var í keppnisferðir m. a. til Keflavíkur,
var það mjög fjölmenn för, enda 5 flokkar þátttakendur. Ennfremur
fór kvennaflokkurinn (meistarafl.) til Vestmannaeyja á þjóðhátíðina
og keppti þar. Vestmannaeyingar (kvennaflokkur frá Tý) komu svo
síðar í boði Vals og léku þá í tveim hraðkeppnismótum, sem stofnað var
til vegna komu þeirra. Stóðu mótin í tvo daga, með þátttöku gestanna
Vals, Víkings, Fram og FH. Gestirnir bjuggu á heimilum Valsstúlkna,
sem gerðu og sitt til að gera þeim förina hingað sem skemmtilegasta,
minnugar glæsilegrar móttöku hjá þeim í Eyjum á þjóðhátíðinni.
Skemmtifundir voru haldnir, við yfirleitt góða aðsókn. Meðal skemmti-
atriða þar skal sérstaklega getið kvikmyndar, sem Sólmundur Jónsson
hinn landskunni handknattleiksmarkvörður Vals hafði tekið og sýndi,
frá starfsemi félagsins o. m. a. langa kafla úr Færeyjaförinni. Var þetta