Valsblaðið - 24.12.1968, Blaðsíða 15
VALSBLAÐIÐ
13
GúSbjörg Árnadóttir, fyrirliði 1967,
brosandi og sœl meÖ Reykjavíkur-
styttuna.
þessari og er undirbúningur þegar
hafinn, og stúlkurnar hafa með
höndum ýmsar fjáraflanir.
Enn hefir ekki borizt neitt um
það, hvernig keppninni verður hátt-
að.
LOKAORÐ
Við, sem höfum starfað í fráfar-
andi stjórn, gerum okkur ljóst, að
margt hefir farið aflaga og mátt
miklu betur fara, en það er einlæg
von okkar að einhver árangur hafi
orðið af veru okkar í stjórn Hand-
knattleiksdeildar Vals. Hin nýja
stjóm, sem nú tekur við, fær mikil
og erfið vandamál við að etja, en
við erum þess fullviss að þeir munu
reynast færir um að leysa það með
sóma.
Við viljum hér með færa öllum
þeim fjölda sem við höfum starfað
með, okkar heztu þakkir fyrir á-
nægjulegt samstarf: þjálfurum, fé-
lögum, aðalstjórn, stjórnum annarra
deilda, svo og hússtjórn og húsverði.
Er það von okkar að gott samstarf
megi haldast um ókomin ár. Látum
ekki ríg á milli deilda eða nefnda
valda misklíð og ósamlyndi, því
innst inni erum við Valsmenn, og
viljum veg Vals sem mestan hvort
sem er í þessari grein íþrótta eða
annarri.
Að lokum þetta: Höldum höndum
saman og stöndum traustan vörð um
félagið okkar og höldum áfram
starfinu sem er óþrjótandi. Og göng-
um léttir í lundu til starfs á kom-
andi vetri staðráðnir í að gera betur
en áður.
Hér að framan hefir verið tekið
úr skýrslu stjórnarinnar það helzta
sem við hefir borið á starfstímabil-
inu. Með skýrslunni var einnig mjög
ýtarlega skrá yfir einstaka leiki sem
flokkar Vals hafa leikið á nefndu
timabili.
Nokkrar umræður urðu um
skýrsluna og mál deildarinnar, og
þá sérstaklega fjármálin, sem eru
allerfið, og er aðalvandamál deild-
arinnar um þessar mundir.
1 stjórn deildarinnar voru kjömir
að þessu sinni: Þórarinn Eyþórsson
YFIRLIT UM ÁRANGUR HANDKNATTLEIKSFLOKKA VALS 1967—1968
Mót Mót unnin L U J T Mörk o/ /o
Meistaraflokkur karla 4 0 21 11 0 10 344—350 52.4
Fyrsti flokkur karla 2 0 8 4 1 3 59— 54 56,3
Annar flokkur karla 2 1 9 7 1 1 92— 47 83,3
Þriðji flokkur karla 2 0 8 2 0 6 59— 68 25,0
Meistaraflokkur kvenna 3 3 14 14 0 0 190— 82 100,0
Fyrsti flokkur kvenna 1 0 3 2 0 1 22— 17 66,7
Annar flokkur kvenna 3 0 13 6 2 5 63— 49 55,8
17 4 76 46 4 26 829—667 62,5
Ólajur Jónsson í hinu „þrönga hlihi“, vir'öist œtla afi komast í gegn.