Valsblaðið - 24.12.1968, Blaðsíða 51

Valsblaðið - 24.12.1968, Blaðsíða 51
VALSBLAÐIÐ 49 KEPPNISFERÐ VALS TIL PORTÚGALS Mánudaginn 30. sept, mætti við Valsheimilið rúmlega 20 manna hópur fólks, sem var að hef ja langt og mikið ferðalag alla leið til Portú- gals, þar sem hinn vinsæli meist- araflokkur Vals átti að mæta hinu heimsfræga liði, Benfica, liðinu, sem svo flatt hafði farið á heim- sókn sinni til okkar kalda lands. Þeir höfðu jú náð jafntefli, en flestir ef ekki allir höfðu spáð þeim stórum sigri. En snúum okk- ur þá að ferðinni. Frá Félagsheimilinu var lagt af stað kl. rúmlega 9 og var ferðinni fyrst heitið til Keflavíkurflugvall- ar, þar sem Loftleiða flugvél beið okkar og átti að flytja okkur til Luxemborgar. Til Keflavíkurflug- vallar komum við kl. 10.00 og fóru þá menn að verzla í Fríhöfninni eins og Islendinga er siður, þegar þeir komast í slík kjarakaup og þar er hægt að gera. Þar fæst næst- um allt milli himins og jarðar á mjög hagstæðu verði. Sem dæmi um vöruval má t. d. geta þess, að Siggi Mar. keypti sér kíki, Árni Njálss. sólgleraugu og Hermann sér ilmandi rakspíra. Um borð í vélina fórum við kl. 11, eins og ákveðið hafði verið, og lagt af stað fljótlega þar á eftir. I vélinni var framreiddur dýrindis hádegisverður eins og reyndar alltaf er í flugvélum Loftleiða. Þá var hægt að fá ýmislegt annað eins og sælgæti, tóbak o. fl. á við- ráðanlegu verði. Til Luxemborgar komum við svo kl. um 14 að staðartíma, kl. 15 að ísl. Þar hófust fyrstu erfið- leikar ferðarinnar. Þar var ætlun- in, að hópurinn ætti að bíða í rúm- lega 4 klst., eða til kl. rúmlega 6. Það lítur kannski illa út, að það sé erfitt að bíða, en það veit eng- inn, nema sá er reynt hefur, hvað það er að bíða í flughöfn. En að bíða í flughöfninni í Luxemborg, það er hreinasta kvöl. Þar er ná- kvæmlega ekkert við að vera. Nokkur borð eru þar á stangli og matur þar af skornum skammti. Það litla, sem hægt er að fá þar, eru pylsur, kex og gos- drykkir. Það, sem menn höfðu aðallega fyrir stafni þarna, var að spila, en þeir, sem ekki höfðu spilin, urðu bara að sitja og láta sér leiðast. Kl. 18.30 var svo loksins til- kynnt brottför. Þá var flogið með Fokker Friendship flugvél frá Lux Air, og var áfangastaður París. I París lentum við svo kl. 19.30 á stórum og glæsilegum flug- velli. Ákveðið var að við legðum svo af stað frá París af öðrum flug- velli, hinum fræga Orly. Á leið- inni þangað ókum við í gegnum borgina og sáum m. a. Sigurbog- ann og Effelturninn, auk þess að verða varir við hina miklu um- ferð, sem í París er. Er við komum svo á Orly sáurn við að það er ekki orðum aukið, sem um hann hefur verið sagt. Byggingin er geysistór og gizka ég á að hún sé á breidd eins og milli Hafnarstrætis og Vonarstrætis og á lengd eins og milli Aðalstrætis og lngólfsstrætis. Við höfum lík- lega ekki séð nema lítinn hluta af þessari miklu byggingu vegna þess hve stutt við dvöldumst þar. Á fyrstu hæðinni hafa öll helztu flugfélög veraldar aðsetur og þar eru farþegar bókaðir. Á annari hæð eru svo verzlanir og veitinga- salir, sem voru svo sannarlega not- aðir, því flestir voru orðnir mjög svangir, þar sem lítið hafði verið borðað frá því í Loftleiðavélinni fyrr um daginn. Tíminn var mjög naumur, því flugvélin, sem við áttum að fljúga með á leiðarenda, átti að leggja af stað frá París kl. 20.30 eða eftir 10 mínútur. Var því ekki annað hægt að fá en samlokur. Vélin, sem við flugum með til Portúgals var frá brasilíska flug- félaginu VARIG og var flogið með Convair 990A þotu. Þessi síðasti spölur var í alla staði hinn þægi- legasti og einnig maturinn, sem fram var borinn. Borðuðu allir sem þeir gátu, en síðan lögðu marg- ir sig til svefns. Til Lissabon kom- um við svo kl. 02.00 og voru þá allir orðnir mjög þreyttir og slæpt- ir, en samt var mikil eftirvænting í öllum eftir að sjá hvernig mót- tökur við fengjum, þessir litlu peyjar, sem leyfðu sér að ógna hin- um stóru Benfica. Á flugvellinum voru mættir blaðamenn og ljósmyndarar ásamt helztu forystumönnum Benfica. Áttu blaðamennirnir viðtöl við nokkra af leikmönnum Vals, Óla B. þjálfara og að sjálfsögðu „for- stjóra“ félagsins Ægi Ferdínants- son. Að öllu þessu loknu komumst svo loks út úr flughöfninni og var veðrið hreint dásamlegt. Mikill hiti og milt loftslag þótt komin væri hánótt. Rútan, sem beið okk- ar, var í eigu Benfica, og var hún þeim vel merkt á alla feanta. Nú var ferðinni heitið á hótelið og tók sú ferð um 30 mín. og þegar þang- að var komið, voru menn ekki lengi að koma sér fyrir á herbergjum sínum, því allir voru hvíldar þurfi. Hótelið, sem við bjuggum á, heitir Motel Mundial og er það í alla staði mjög glæsilegt.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84

x

Valsblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Valsblaðið
https://timarit.is/publication/399

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.