Valsblaðið - 24.12.1968, Blaðsíða 57
VALSBLAÐIÐ
Nancy myndi falla niður í aðra
deild og var með réttu álitið eitt
lakasta liðið í fyrstu deildinni.
I sumarfríinu seldi Nancy flesta
af liðtækustu mönnum sínum gegn
miklum mótmælum borgarbúa, en
lofaði í staðinn einhverju betra.
Áhugamenn félagsins tóku þau
loforð ekki hátíðlega, fyrr en
„sprengjan sprakk“. Fréttin um
að Nancy hefði keypt hinn fræga
innherja frá Arsenal, íslending-
inn Guðmundsson, þrátt fyrir
samkeppni ríkari félaga, var virki-
leg „bomba“.
Eins og St. Thomas, biðu Nancy-
búar eftir að sjá Guðmundsson
leika áður en þeir létu í Ijós skoð-
un sína á þessari ráðstöfun, fé-
lagsstjórnarinnar. Eftir að hafa
séð fyrrverandi Arsenalleikmann-
inn á Essey-vellinum eru allir sam-
mála um það, að hann sé sá lang-
bezti knattspyrnumaður, sem stig-
ið hefur fæti á grasflöt Essay-
vallarins.
Þetta var ekki slæm byrjun fyr-
ir himí unga Islending, sem mark-
visst sótti fram á þeirri braut, sem
hann hafði markað sér, og nú
vinnur hann persónulega sigra í
íþrótt sinni, og honum eru þakk-
aðir sigrar liðsins öðrum fremur.
. . Lundi-Sport segir í byrjun sept-
ember 19 í7:
.... Að sigra liðið frá Marseille
með 4:0 verður að teljast glæsileg-
ur sigur fyrir Nancy-liðið, einkum
þegar það er haft hugfast, að al-
menningi hafði þótt Marseille-lið-
ið mjög líklegt til stórra afreka og
mikiila sigra. Við fengum ekki að
horfa á fallega knattspyrnu að
þessu sinni. — Enda þótt leikur-
inn væri ekki í heild sérstaklega
skemmtilegur, þá var leikur Is-
lendingsins Alberts Guðmundsson-
ar öllum vonum og óskum framar.
Guðmundsson er knattspyrnusnill-
ingur og forráðamenn félagsins í
Lorraine hafa verið heppnir að fá
hann í liðið, því að „Gud“ mun
ekki einungis vinna sigra og stig
fyrir þá, en hann er líka maður-
inn sem mun draga áhorfenda-
fjöldann að Essey-vellinum. Hann
er ekki ósvipaður Balehuys frá
Metz fyrir stríð. Guðmundsson er
fuilkominn leikmaður. Hann ber af
öllum félögum sínum, af því að
hann vinnur ekki aðeins með fót-
unum, heldur líka með heilanum.
Hann rasar aldrei um ráð fram.
Hann leikur samkvæmt þaulhugs-
aðri og nákvæmri áætlun. Ef allir
knattspyrnumenn okkar færu að
hans dæmi, yrðu þeir helmingi
betri. „Gud“ ber af öllum hinum
leikmönnunum eins og gull af eiri.
Þótt hann fengi alla andstæð-
ingana á móti sér þá losaði hann
sig jafnharðan við þá, var jafnt
boðinn til varnar sem sóknar.
Hann skar sig úr sökum knatt-
leikni sinnar og leikbragða. Öllum
þótti hann fremri Ben Barek, og
eru það ekki lítil meðmæli. —
Blaðið Record segir um sama
leilc:
.... Eftir ósigurinn við Reims-
liðið voru menn vondaufir um úr-
slit leiksins við Marseille- liðið.
„Við töpum þeim leik með tveggja
marka mun, að minnsta kosti, nema
kraftaverk gerist", sögðu menn al-
mennt. En kraftaverkið gerðist og
sá sem vann það hét Albert Guð-
mundsson......Bíðum þangað til
við fáum aftur þá ánægju að sjá
Nancy-liðið leika, en það mætti
setja á stofn nefnd og fela henni
að reisa Albert Guðmundssyni
styttu ....
Og L’est Republicain segir m.a.:
.... Guðmundsson var konung-
ur vallarins.
Hróður Alberts fréttist víða um
Frakkland og raunar langt út fyrir
landamæri þess. Honum hafði verið
líkt við, og sumir talið betri en Ben
Barek, sem um þessar mundir var
álitinn bezti miðherji Frakklands.
Hann var blökkumaður og lék með
Stade-France.
Nú kom að því að þessi lið lékju
saman, og var mikil spenna meðal
áhorfenda að sjá þessa snillinga í
einum og sama leiknum, og var
ekki laust við að það væri litið á
leikinn sem nokkurskonar einvígi
milli „svörtu Perlunnar“ eins og
Ben Barek var kallaður, og Al-
berts.
Um þennan leik segir eitt París-
arblaðanna, en leikurinn fór þar
fram:
Gudmundsson, BenBarek og —
dómarinn voru i sviðsljósinu.
Nancy-Stade-France 3:2.
.... Gudmundsson, sem nýtur
55
Frakklandsmeistarinn Albert Gubmundsson,
méS afsteypu af bikarnum til eignar.
hinnar mestu vinsemdar hjá for-
ustumönnum Nancy, var sá sem
flestir höfðu komið til að sjá.
Áhorfendur urðu ekki fyrir
neinum vonbrigðum. Að vísu er
Islendingurinn spar á krafta sína,
eins og sæmir enskum atvinnu-
manni.
En þegar hans er greinilega
þörf, hvort sem er í sókn eða vörn,
þá leggur hann sig allan fram. Ró
hans og sveigjanleiki er algjör
andstæða við hina skapheitu sam-
herja hans .... Hann hefur full-
komið vald yfir knettinum, leilmi
hans bregzt ekki og hann hefur
fullkomna yfirsýn yfir leikinn.
Huraut, sem átti að gæta hans
komst oft í hann krappan.
„Ég var hrifinn af Ben Barek,
en hitinn átti ekki við mig“, sagði
Gudmundsson eftir leikinn.
Þriðja mark Alberts var dæmt
ógilt vegna rangstöðu, sem enginn
virtist þó sjá nema dómarinn, ....
I þessum leik hlaut Albert titil-
inn: „Hvíta perlan“.....
Meðal áhorfenda við þenna um-
rædda leik var Guðbjörn Jónsson
úr KR, og skrifaði hann heim, eft-
ir leikinn á þessa leið:
.... Föstudaginn 12. sept. fór
ég með Nancy til Parísar, en þar
átti félagið að leika ámóti hinu