Valsblaðið - 24.12.1968, Blaðsíða 68

Valsblaðið - 24.12.1968, Blaðsíða 68
66 VALSBLAÐIÐ VALSFJÖLSKYLDAN «-------------------------xx Einn keppandi í fimmta flokki. einn keppandi í fjórSa flokki, einn kepp- andi í þriðja flokki, einn keppandi í öðrum flokki, og pabbinn í stjórn knattspyrnudeildarinnar. Vals-fjölskyldan. Frá vinstri: Einar, Vilhjálmur, Iíjartan GuSmundsson, Sjöfn, Helga Ein- arsdóttir, GarSar og GuSmundur. Það er kunnara en frá þurfi að segja, að oft hafa margir hræður ver- ið samtímis í félagsstörfum í Val. Þessir bræðrahópar hafa oft mark- að spor í starfsemina hæði á leik- vellinum og eins utan vallar. Svona samanþjappaður hópur er í mörg- um tilfellum líklegur til að hafa á- hrif á leikfélagana utan vallarins, sem svo laðast að félaginu sem hræð- urnir tala um og lýsa. Við eldri félagar minnumst t. d. hræðrahóps, sem kom inn i félagið þegar verulega hallaði undan fæti hjá því, og nauðsyn var að takast á við erfiðleikana. Þeir mynduðu þann kjarna sem um munaði, og urðu öðr- um fremur til þess að lyfta félaginu upp úr dvalanum og koma því upp á topp, ef svo mætti segja. Þessir bræður voru, Jón, Ámundi og Ólaf- ur Sigurðssynir. Það verður þvi ekki annað sagt en að þeirra fjölskylda hafi sannarlega verið Valsfjölskylda þeirra tíma. Vafalaust hafa á hverj- um tíma verið til Valsfjölskyldur sem hafa lagt Val til góða og dug- mikla drengi, þótt það hafi ekki ver- ið sérstaklega dregið fram. Nú datt okkur í hug í blaðnefnd- inni að athuga hvort til væri í dag Valsfjölskylda, og fórum þvi i nokk- urskonar liðskönnun meðal yngri fé- laganna, og ræddum við þjálfarana. Þeir renndu huganum yfir hópana sina, og ekki leið löng stund þar til þeir höfðu fundið fjóra bræður sem æfðu með félaginu frá sömu fjöl- skyldunni. Það kom lika fljótlega fram, að þeir virtust koma nokkuð við sögu, því að sumir þeirra gegndu þeirri virðingarstöðu að vera fyrir- liðar í knattspyrnusveit. Það kom lika fram, að einn þeirra hefði orðið Islandsmeistari í handknattleik. T knattspyrnunni voru þeir margfaldir Islands- og Reykjavíkurmeistarar. Og ekki nóg með það, sögðu þeir Róbert og Lárus, við sjáum pabbann hér á mörgum æfingum, og öllum leikjum. Á hann það þá til að láta til sín heyra, og hvetja Valsmenn- ina til dáða, og er þá fundvís á hressi- leg og kröftug hvatningarorð, með góðum árangri. Þetta varð til þess að vekja for- vitni okkar á þessari Valsfjölskyldu, og gera tilraun til að kynnast henni nánar, og kynna hana fyrir Valsfé- lögum. Við fengum að vita að hún býr í Hvassaleiti 28. Eftir að hafa gert boð á undan okkur heimsóttum við fjölskylduna og höfðum ljósmyndara með í för- inni. Það leyndi sér ekki, að hér hlaut þessum ungu Valsmönnum að hða vel, og að pabbi og mamma stóðu við hlið þeirra, og héldu vörð um allt það er þeim við kom í starfi eða leik. Ekki höfðum við lengi setið þar inni þegar bornar voru fram veit- ingar, og það sem vakti athygli okk- ar var, að hinir ungu menn tóku þátt í að leggja á borðið. Spurði ég þá mömmuna hvort þetta væri þeirra vani, og svaraði hún á þá leið, að þegar þeir heíðu' tíma og þegar hafa þvrfti hraðan á lijálpa þeir til. Eftir að hafa notið góðgerða, tók- um við tal saman um iþróttaáhuga lieimilisfólksins. Faðirinn á heimil- inu heitir Kjartan Guðmundsson og kona hans er Helga Einarsdóttir. Synirnir heita: Garðar, Vilhjálmur, Einar og Guðmundur, og svo lítil heimasæta þriggja ára, sem heitir Sjöfn. Fyrst spjölluðum við dálítið við foreldrana um þátltöku þeirra í íþróttum og viðhorf þeirra til íþrótta- iðkana drengjanna og fleira.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84

x

Valsblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Valsblaðið
https://timarit.is/publication/399

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.