Valsblaðið - 24.12.1968, Blaðsíða 24

Valsblaðið - 24.12.1968, Blaðsíða 24
22 VALSBLAÐIÐ Róbert Jónsson: Þetta hefur allt verið skemmtilegt — Hef veriö óvenju heppinn að lenda með samstilltum hópum Róbert Jónsson, þjálfari, maÖurinn sem er sú lisl léS, aS ná tökum á „efniviSnum“ og móta hann meS góSum árangri. Eitt mikilvægasta hlutverkið í starfsemi íþróttafélaganna er leið- sögn hinna yngri í félögunum, og kemur þar til bæði hið félagslega og eins hin íþróttalega. Þar er í raun og sannleika mótuð framtíð félaganna hvað snertir íþróttagetu og það mun oft fara saman að þá sé félagslegu hliðinni einnig borg- ið. Valur hefur oft verið heppinn með menn, sem tekið hafa að sér þessi þýðingarmiklu störf. — Frammistaða yngri flokkanna mörg undanfarin ár sýnir þetta og sannar. Einn þessara manna, sem að undanförnu hefur verið mjög virkur sem leiðbeinandi og þjálfari yngri flokkanna í félaginu er Róbert Jónsson. Róbert hefur alltaf tekið starf sitt alvarlega, og skynjað þá þýð- ingu, sem þetta starf hefur fyrir félagið, enda náð einstæðum á- rangri. I kaflanum ,,þeir ungu hafa orð- ið“ má líka heyra að hann er met- inn og virtur af þeim, sem hann kennir og þjálfar. Hann hefur líka það í sér að ná til hjartna drengjanna: Er mátulega hai'ður og ákveðinn. en vinsamlegur í strangleikanum, og hreinn og beinn, en það eru eiginleikar, sem drengir kunna að meta. Hann nær góðum tökum á drengjunum þ. e. hann heldur hinum nauðsynlega aga. Það munu vera um 10 ár síðan hann byrjaði að þjálfa og leið- beina í yngri flokkunum, og þótti okkur í blaðstjórninni rétt að leggja fyrir hann nokkrar spurn- ingar, varðandi unglinga og drengjaþjálfun og aðra leiðsögn á þessum árum: Hvenær byrjaðir þú að þjálfa? Það munu vera um 10 ár síðan, og þá byrjaði ég með 5. flokk, en þegar Murdoch kom í síðara skipt- ið þá tók hann við og þjálfaði alla flokkana. Afskipti mín af knattspyrnu voru ekki sérstaklega mikil, því ég fór í sveit á sumrum, og var ekki með allt sumarið fyrr en síðara árið mitt í þriðja flokki, og byrj- aði þá ásamt Jóni Björnssyni að aðstoða við æfingar, en svo varð það þannig að við sáum um þjálf- unina. Kem svo aftur þegar Murdoch fer, ásamt Matthiasi Hjartarsyni, og tökum að okkur 5. flokkinn. Hvaða flokkur er skemmtileg- •astur ? Þetta hefur allt verið skemmti- legt, í hvaða flokki sem er, þó hef- ur mér þótt einna skemmtilegast að annast f jórða flokk. Það er eins og maður finni þar mest þakklæti, auk þess eru þeir komnir á þann aldur að mega sín meir, hafa náð meiri getu til að taka á móti til- sögn. Hvaða munur er á að þjálfa hina ýmsu flokka? Ég er nú byrjandi með annan flokk, en víst er að maður verð- ur að koma betur undirbúinn á æfingar eldri flokkanna, og þá sér- staklega í 2. og enda 3. flokki, ef þeir eiga að hafa tiltrú á að þetta ganga. Þeir eru því kröfubarðari, og vilja að vel sé unnið, að tilbreyt- ing sé í æfingunum, annars verða þær leiðinlegar, og þá missa þeir áhugann til að leggja sig frarn og koma. Varðancli þá yngri eins og 5. og 4. fl. getur maður leyft sér endrum og eins að koma ver undir- búinn, þar er það meira leikurinn, það að vera með, sem fullnægir. Hvað hefur valdið þér mestum erfiðleikum við þjálfun? Ég hef verið óvenju heppinn að lenda með samstilltum hópum, sem hafa haldið saman allt sumarið eða frá byrjun, þetta hafa verið piltar sem ekki hafa farið í sveit, og því hefur það aldrei verið vandamál hjá mér, en víða truflar það æfing- ar í félögum. Aðeins komið fyrir að ég hef sótt pilta í Vatnaskóg eða Úlfljótsvatn, ef mikið hefur legið við í úrslitaleikjum, en ekki hefur það komið oft fyrir. Það hefur verið rnjög gaman að vinna með piltunum, og engin alvarleg vanda mál komið upp. Þó má geta þess að eitt sinn varð ég þess var að ekki átti að hlýðnast mér. Leikmaður sem ég hafði sett á tiltekinn stað í liðinu neitaði að leika þar. Var hann langt kominn að búa sig fyrir leikinn. Ég sagði við þennan unga mann, sem var sterkasti maður liðsins, að flýta sér þá í fötin aftur og fara út, því ég þyrfti að tala við hina um leikinn. Gerði hann það. Síðan ræddi ég við piltana um þennan alvarlega leik, og bað hvern og einn að bæta örlítið við sig þannig að liðið í heilcl næði sama styrk- leika og það hafði með þeim, sem mótmælin hafði í frammi. Þeir tóku þetta mjög alvarlega, og svo fór að þeir unnu leikinn. Þetta var í miðju Haustmóti, og hann kom ekki til æfinga það sem eftir var, en þegar inniæfingar
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84

x

Valsblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Valsblaðið
https://timarit.is/publication/399

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.