Valsblaðið - 24.12.1968, Blaðsíða 52

Valsblaðið - 24.12.1968, Blaðsíða 52
50 VALSBLAÐIÐ LiSiS sem lék viS Benfica í Portúgal: Fremri röS frá vinslri: Reynir Jónsson, Páll Ragnars- son, Samúel Erlingsson, Þorsteinn FriSþjófsson, Hermann Gunnarsson. Aftari röS frá vinstri: Gunnstein Skúlason, Bergsveinn Alfonsson, Einar Halldórsson, Ingvar Elísson, SigurSur Dagsson og SigurSur Jónsson. Á fyrstu hæð er sjónvarpsher- bergi og setustofa ásamt litlum bar, síðan koma 9 hæðir með her- bergjum. Á 10. hæð er svo mat- salurinn og á þeirri 11. er sólbaðs- skýli. Herbergin eru mjög nota- leg og er baðherbergi í þeim öllum. Átti það eftir að koma sér vel, því hitinn þarna var mjög mikill og var þá indælt að fá sér sturtubað. Fyrsti dagurinn í Lissabon hófst í matsalnum, þar sem ákveð- ið hafði verið, að við hittumst um hádegi, því Óla B. þótti það nauð- synlegt að liðsmenn fengju að sofa vel eftir ferðalagið. Þó voru nokkr- ir svo árrisulir, að þeir voru komn- ir á stjá snemma um morguninn og voru þá þegar búnir að skoða sig um í næsta nágrenni hótels- ins. Að loknum hádegisverði átti að fara á æfingu, á æfingavelli Benfica sem var þar í nágrenninu. Fyrir utan hótelið hafði safnazt saman nokkur fjöldi fólks til að sjá hvaða frægu menn þarna færu. Því fyrir utan stóð Benfica rútan, sem flutt hafði okkur kvöldið áður og svo virtist að allir í Lissabon þekktu rútuna. Þegar við komum á völlinn, brá okkur nokkuð í brún, því völlurinn var mjög glæsilegur og rúmar líklega um 15—20000 manns. Á meðan á æfingunni stóð komu nokkrir ungir piltar úr ná- grenninu til að fylgjast með. Held- ur voru þeir óálitlegir, skítugir, í óhreinum fötum og berfættir. Allir hirtu þeir þá sígarettu- stubba, sem við hentum frá okkur og þar sá maður 8—9 ára pilta reykja sígarettustubbana. Að lokinni erfiðri æfingu hjá liðinu var farið í stutta ökuferð. Fyrst var völlurinn, sem leika átti á, skoðaður, og var hann gífurlegt mannvirki að sjá. Til dæmis voru 4 Ijóskastara plötur á honum, 1 í hverju horni vallarins, hver um sig var jafn há og turn Hallgríms- kirkju. Á hverri plötu voru 260 ljóskastarar. Áhorfendastæðin taka um það bil 90.000 manns. Þá var farið að skoða eitt af aðsetrum Benfica, þar sem þeir m. a. geyma hluta af þeim verðlaunum, sem fé- lagið hefur hlotið fyrir þær ýmsu greinar, sem félagið iðkar. I húsi þessu, sem er á þremur hæðum, var m. a. knattborðsstofa, veit- ingasalur, skrifstofur o. fl. Á ann- ari hæð hússins var stórt herbergi, þar sem verðlaunagripirnir voru geymdir. Það var ótrúleg sjón, sem við blasti, er inn var komið. Inni voru rúmlega 2000 bikarar saman komnir, og náði þetta frá gólfi til lofts. Á miðju gólfinu stóð svo stór bikar, sem var um 1.10 metrar á hæð. Að þessu loknu var farið heim á hótel og allir áttu þá strax að fara að sofa, því næsti dagur yrði bæði erfiður og mikilvægur fyrir Val. Allir vöknuðu snemma morgun- inn eftir eins og fyrirskipað var. Fyrst var farið til morgunverðar, en að honum loknum átti að leggja strax af stað út á baðströndina Estoril, sem er sú frægasta í Portúgal, og liggur rétt fyrir utan borgina. Þegar þangað var komið, þustu allir í baðklefana, fóru í sundfötin og síðan beint í sjóinn, — og þó, það voru víst ekki nema þeir hraustustu, því sjórinn var ekki í heitara lagi, því þetta var bara gamla Atlantshafið, sem við þekkjum svo vel frá litlu Naut- hólsvíkinni okkar. Hitann og sand- inn var þó hægt að nota og var það gert. Þá var náð í boltann og leikin knattspyrna og handbolti á ströndinni. Eftir notalega stund í sandin- um og á ströndinni var ákveðið að leggja af stað heim á hótel, því liðsmennirnir áttu allir að vera innan dyra þar til leikurinn hæf- ist, svo að enginn veiktist af þeim ofsa hita, sem þarna var. Leikur- inn átti svo að hefjast ld. 9.30 um kvöldið og átti þá að leika í flóð- ljósum. Ég hafði hér heima komið mér í samband við portúgalskan blaðamann, sem kom hingað vegna leiksins hér heima og var ákveðið, að hann færi með mér á völlinn. Blaðamaðurinn, sem heitir Alfredo Farinha, er einn af eigendum eins stærsta íþróttablaðs, sem gefið er út í Portúgal. Blað hans, A BOLA, er gefið út í 180.000 eintökum og kemur út þrisvar í viku. Alfredo kom eins og um var talað kl. 17.30, og fórum við fyrst á matsölustað, sem einn af framkvæmdastjórum Benfica á, og bauð mér þar að borða. Þar sem ég er ekki ýkja mikill matmaður, þá leizt mér fremur illa á þetta tiltæki. Vegna þess, að maturinn á hótelinu var ekkert sérstaklega spennandi, þá var mér ekkert vel við að borða á þessum stað, sem var gamalt hús, þar sem loft og veggir voru kalk- aðir og fremur óvistlegt þarna. Ég lét mig þó hafa það, þar sem ég var þarna Islendingur og vinur minn hafði nú viljað sýna mér hvað portúgalskur matur væri, þá gat ég ekki neitað. Það fyrsta, sem fram var borið, var súpa, og var hún eins og bezt gerist á fínustu hótelum og var framhaldið eftir því, allt alveg frábært. Ég lét ánægju mína í ljós eins og mér var
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84

x

Valsblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Valsblaðið
https://timarit.is/publication/399

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.