Valsblaðið - 24.12.1968, Blaðsíða 6
4
VALSBLAÐIÐ
Frá Valsdeginum 11. ágúst siSastliSiS sumar. LeikaS á öllum völlum. Mamma og pabbi og
áSrir Valsunnendur horfa á „sina menn“.
Valur er stórt félag, sem hefur
yfir 1000 félagsmenn. Eignir fé-
lagsins skipta milljónum króna.
Miklir fjármunir fara um hendur
deilda og nefnda. Það má því ekki
vera tilviljanakennt hverjir taka
mikilsverðar ákvarðanir. Það sem
talið er að fulltrúa-aðalfundur
hafi meira gildi heldur en aðal-
fundur með núverandi sniði, er, að
tryggt þykir, að allir starfandi
framámenn félagsins mæti á fund-
um, ásamt öðrum áhugasömum fé-
lagsmönnum.
Frumvarp þetta var lagt fyrir
framhaldsaðalfund 2. des. s.l.
Frumvarpið náði ekki fram að
ganga, og var fellt, en þar sem um
lagabreytingu var að ræða, þurfti
% til að það næði samþykki.
Tímanýting íþróttahússins er
mjög góð, eins og undanfarin ár.
Með tilkomu badmintondeildar er
nú aukin þörf fyrir meira hús-
rými, og er vissulega tímabært að
athuga möguleika á byggingu nýs
íþróttahúss.
1 sumar og haust var skipt um
gólf í íþróttasalnum, og salurinn
málaður og lagfærður. Áður en
gamla gólfið var rifið, hélt stjórn-
in hlutaveltu í salnum, og var hún
sæmilega sótt.
Félagsheimilisnefndin réði nýja
húsverði, sem nú hafa starfað með
miklum ágætum í eitt ár. Nefndin
vinnur nú að því að nýta félags-
heimilið betur en hingað til. Fram-
kvæmda- og vallanefnd hefur aðal-
lega unnið að jarðabótum og fegr-
un svæðisins.
Unglingaflokkur á vegum borg-
arinnar vann síðastliðið sumar að
lagfæringu og snyrtingu á svæð-
inu.
Á aðalfundum undanfarinna ára
og auk þess meðal ýmsra Vaisfé-
laga, hefur oft verið minnzt á það,
að gaman væri að koma upp eða
stofna til Valsdags að Hlíðarenda.
Þar sem sitt hvað færi fram og
sýnt væri af starfsemi félagsins,
fyrst og fremst aðstandendum fé-
lagsmanna, eldri og yngri og þó
kannske frekar yngri.
Lengst af var þetta þó umtalið
eitt o g af framkvæmdum varð ekki,
þar til að á síðasta aðalfundi var
samþykkt svohljóðandi tillaga:
„Aðalfundur Vals haldinn 11.
Þá kom Valsblaðið út undir
sömu stjórn og áður. Var blaðið
hið vandaðasta að allri gerð, svo
sem áður.
Starfið í Val verður æ umfangs-
meira með hverju ári. Það er því
mikil vinna, sem margir leggja á
sig til að okkar ágæta félag geti
haldið áfram að þjóna því hlut-
verki sem því er ætlað.
marz 1968 samþykkir að fela
stjórn félagsins, að sjá um, að efnt
verði til Vals-dags einu sinni ár
hvert." Þessi tillaga var samþykkt
með öllum greiddum atkvæðum
gegnþremur. Meðþessari samþykkt
var loku fyrir það skotið að stjóm-
in gæti skotið sér undan fram-
kvæmdinni, þar sem beint og ótví-
rætt var fyrir hana lagt að fram-
kvæma þetta á starfsárinu, eða fá
yfir sig harða og réttmæta gagn-
rýni, þegar þar að kæmi, fyrir að
bregðast því valdi, sem var ofar
öllu öðru valdi í félaginu — aðal-
VALSDAGU RIN N 1968