Valsblaðið - 24.12.1968, Síða 22
20
VALSBLAÐIÐ
kannske óæfður og eyðileggja fyrir
félögum sinrnn, sem eru búnir að
leggja sig alla fram við æfingar. . . .
Ungur maður segir í „eftirmála“,
eftir að hafa talað af hreinskilni um
ástandið: Taka verður til greina að
ég hefi ekki stungið nefinu inn fyrir
dyr meistaraflokks i vetur, en i stór-
um dráttum eru þetta skoðanir mín-
ar á meistaraflokki. . . .
Sá þriðji segir meðal annars: Ég
held að liðið hafi fulla getu á við
önnur lið, eins og sýnir sig í fyrri
umferðum móta, en síðan verða
mennimir öruggir með sjálfa sig og
sigur liðsins, og að þeir gera sér ekki
grein fyrir að þeir séu að tapa fyrr
en um seinan. Einnig tel ég að eftir
fyrsta mánuðinn hafi mannskapur-
inn farið að slaka á í æfingasókn-
inni, og varla er hægt að segja að
liðið hafi nokkurn tima leikið allt
saman á æfingum. . . .
Sá fjórði segir meðal annars:
Sterkasta hlið Valsliðsins em ein-
staklingamir, hver á sínu sviði:
Flestallir leikmenn hafa yfir að ráða
góðri knattleikni og hver og einn
getur skotið í gegnum hvaða vörn
sem er, aðeins ef vilji og samstaða
er fyrir hendi.
Ég held að veikasta hlið liðsins sé
almennt kæruleysi. Til dæmis mæt-
ingar á æfingar s.l. vetur vom ágæt-
ar framan af, en fóm hríðversnandi
er á leið veturinn og árangurinn
varð eftir þvi. Oft kom það fyrir að
við vorum að tínast inn í salinn 15
—20 mín. eftir að æfingartími var
byrjaður. Á æfingum held ég að
heildin hafi sjaldnast tekið á að fullu
allan tímann. . . .
Meira verður ekki tekið upp af
svörum leikmanna, þótt af miklu og
skemmtilegu sé að taka, en það gef-
ur svolitla vitneskju um það sem
þeir félagar í stjóm handknattleiks-
deildarinnar em að gera til sam-
eiginlegs átaks.
Þórarni liggur meira á hjarta og
heldur áfram: Við höfum hugsað
okkur að efla eitthvað fræðsluna um
þjálfun og fleira sem kemur hand-
knattleiknum við. Má í því sam-
bandi geta þess að Jón Ásgeirsson
flutti fyrir okkur sérlega skemmti-
legt erindi um þjálfun, sem vakti ó-
skipta athygli allra sem á hlýddu.
Annar ágætur maður ætlar, áður en
langt um líður, að halda áfram þar
Badmintondeildm
Páll Jörundsson segir: Góður
iþróttamaður er og á að vera góður
borgari.
Það verður ekki annað sagt, en
að ég sé ánægður með árangurinn
á þessu fyrsta starfsári deildarinn-
ar. Aðsóknin að æfingum var mjög
mikil og nú lítur út fyrir að aðsókn-
in verði ennþá meiri. Fjárhagsaf-
koman hefir verið tiltölulega góð
þetta ár, en hún er undirstaða allr-
ar starfsemi.
LTnglingatímamir, sem við höfð-
um í fyrra, voru mjög vel sóttir, en
þeir voru ætlaðir fólki sem var und-
ir 14 ára aldri, og munu sumir sem
komu til þessara æfinga hafa verið
allt niður í 8—9 ár.
Þorvaldur Ásgeirsson var leiðbein-
andi í fyrra, en í vetur verður Rafn
Viggósson kennari á þessum tím-
um. Þeir em eftir hádegi á laugar-
dögum tveir samhangandi fyrir uiig-
lingana og einn fyrjr fullorðna.
Ég hefi veríð sérstaklega heppinn
með samstarfsmenn í stjóm deidar-
innar, þar voru samvaldir ágætis-
menn, og ég held að þeir séu enn
áhugasamari nú en í fyrra, því allt
er þetta tímafrekt, og því verða
menn að sinna í fritima sínum.
Á mig runnu tvær grímur, hvort
ég ætti að halda áfram í þessu, en
ég hefi alltaf gaman af að starfa að
þessum æskulýðs- og félagsmálum.
Hitt er svo annað mál, að maður
finnur til þess að maður þyrfti að
standa sig betur og sinna þessu enn
meir ef verulega vel á að ganga.
Við vonum að okkur takist að
halda í horfinu á þessu ári, og höf-
sem Jón endaði, en það er Jón Er-
lendsson.
Þess má og geta að við höfum tek-
ið það upp að fræðast dálítið um
keppendur okkar í ýmsum flokkum,
hvernig frammistaða þeirra er í ein-
stökum leikjum, hvar styrkurinn er
og hvar veilan, en þá skalt þú tala
við Sigurð Gunnarsson, sem af mikl-
um dugnaði, hugkvæmni og elju
hefir aflað þýðingarmikilla upplýs-
inga til að vinna úr.
Páll Jörundsson, form. Badminlondeildar.
um við rætt nokkuð hvað megi helzt
gera til þess að halda þessu saman
og í því sambandi höfmn við ákveð-
ið að efna til tveggja skemmtifunda
i vetur og sýna þar meðal annars
kvikmyndir af badminton. Þá ger-
um við ráð fyrir að efnt verði til
innanfélagsmóts, eins og í fyrra, í
janúar eða febrúar eða áður en aðal-
mótin byrja.
Ég tel að í félaginu séu mjög efni-
legir unglingar, miðað við islenzkan
mælikvarða, ef þeir halda saman og
æfa af áhuga.
Ég vil svo að lokum segja þetta:
Ég vona að allir þessir drengir haldi
áfram að æfa og taka þátt í félags-
störfunum, ekki sizt þeirra sjálfra
vegna, þvi góður iþróttamaður er og
á að vera góður borgari.
Ég vil líka benda félagsmönnum
á, að við höfum komið fyrir í gangi
íþróttahússins spurningakassa, þar
sem við óskum eftir ábendingum og
tillögum frá öllum sem hafa eitthvað
til málanna að leggja.
Ég vil að lokum segja það, að ég
treysti á samstöðu í deildinni milli
allra sem þar starfa í leik eða utan,
svo okkur takist að gera handknatt-
leikinn í Val betri og með því auka
veg handknattleiksíþróttarinnar.