Valsblaðið - 24.12.1968, Blaðsíða 25
VALSBLAÐIÐ
23
Þannig sveif SigurSui■ stanganna á milli og bjargaSi á báSar hliSar!
byrjuðu, kom hann aftur eins og
ekkert hefði ískorizt, og á þetta
atvik ’hef ég aldrei minnzt við
hann.
Með þessari aðgerð náði ég tök-
um á liðinu, og þeim aga sem
hverjum þjálfara er nauðsynlegt.
Það komi jafnvel á undan getu
hans sem þjálfara.
Á hvað leggur þú mesta áherzlu
við þjálfun hinna ýmsu flokka?
Þetta er umræðuefni, sem menn
eru ekki á einu máli um. Hjá okk-
ur í Val hefur þetta heppnazt,
vegna þess að þar hafa verið sam-
stilltir strákar. Þetta hefur þróazt
þannig að áherzlan hefur verið
lögð á knattmeðferðina, og þá fara
þeir að hafa gaman af þessum æf-
ingum. Ég legg mikla áherzlu á að
þeir stundi vel innanhússæfingar,
og það hafa þeir gert. Þetta er
einn aðalvinningurinn, og ég tel
að þeir nái þar svo litlu forskoti.
Ég held, miðað við okkur, að þá
geti það vei’ið gott að fylgja eftir
góðum flokki, og á ég þar við að
þjálfarinn þreytist síður ef vel
gengur, og það getur liaft sína
kosti, og hann geti haldið betur
saman sínum strákum, en ef skipt
er um þjálfara. Ég held að það sé
ekki rétt að þjálfari fylgi eftir
slökum flokki. Þetta krefst hóps
þjálfara hjá hverju félagi, ef það
á að vera hægt að fylgja eftir ein-
hverri reglu.
Vantar meiri aðstöðu hjá Val til
að ná fyllsta árangri?
Við stöndum ábyggilega fram-
arlega hvað aðstöðu snertir, ef t. d.
er miðað við Reykjavíkurfélögin.
Hitt er svo annað mál, hvort við
gætum skapað okkur enn betri að-
stöðu, sem jafnvel gæti veitt okkur
„forskot á sæluna".
I fyrra tók ég þátt í þjálfara-
námskeiði í Vejle í Danmörku, og
eftir heimkomuna gaf ég skýrslu
um námskeiðið og það sem fyrir
augu bar. Benti ég þar á tiltekin
atriði, sem ég sá þar ytra, og taldi
að aðstaða og möguleiki væri að
koma fyrir á svæði Vals. Ég hef
ekki orðið var við neinar fram-
kvæmdir í þessu sambandi ennþá.
Ég vil í þessu sambandi segja, að
það var mjög jákvætt að koma
heim til formanns deildarinnar í
byrjun æfingatímabilsins, því þar
voru rædd ýms þýðingarmikil atr-
iði. Vona að það verði haldið áfram
með þá, og að því kemur að þeir
bera enn meiri árangur.
En maður er ef til vill of kröfu-
harður, og vill að það verði fram-
kvæmt, sem á góma ber og jákvætt
er talið.
Telur þú það vinning fyrir Val,
ef eldri félagar með haldgóða
reynslu í listum knattspyrnunnar,
væru ráðgefandi yngri þjálfurum,
sem annast leiðsögn meðal þeirra
ungu ?
Með skipulögðu starfi má hafa
mikinn hagnað af samstarfi við
eldri félaga varðandi leiðbeinenda-
störf fyrir þá yngri. Þeir gætu
verið góður bakhjarl fyrir okkur,
og tengiliður milli okkar og stjórn-
ar deildarinnar, ef að því væri
horfið. I þessu sambandi má á það
benda að strákunum þykir mjög
ánægjulegt þegar eldri félagar
koma t. d. á fundi og fjölspjalla
þar við þá um knattspyrnuna og
félagsmálin. Þetta eykur líka
tilbreytnina.
Ert þú ánægður með félagsand-
ann í Val í dag?
Alveg tvímælalaust, mér finnst
vera samstenming meðal félag-
anna. Má vel vera að sigrar meist-
araflokks í Islandsmóti hafi gert
sitt til þess innan deildarinnar.
Mér finnst þó það alltaf vera speg-
ilmyndin af félagslífinu ef vel er
unnið fyrir yngri flokkana. Það
þarf ekki að byggjast á eintómum
sigrum, það er samvinnan og sam-
hugurinn sem það skapar.
Hvað þarf marga leiðbeinendur
með hverjum flokki?