Valsblaðið - 24.12.1968, Page 29
VALSBLAÐIÐ
27
Það var hrifning í röddum
ungra manna, þegar þeir sungu
marga af söngvum hans.
„Þú æskuskari’ á íslands strönd,
þú ert í flokki þeim,
er sækir fram í sólarlönd
með sigri að komast heim,
rís upp með fjöri’ og’ stíg á stokk
og streng þess heit að rjúfa ei flokk,
unz sigri’ er náð og sagan skráð,
er sýnir Guðs þíns ráð.“
Það var líka eftirvænting í hug-
um unglinganna, sem hlustuðu á
framhaldssögur hans á KFUM-
fundunum, Sölva, Söguna af Her-
mundi Jarlssyni, Drenginn frá
Skern og knattspyrnusöguna
Keppinautar, en hana samdi séra
Friðrik fyrir drengina sína í Val.
1 ævisögu sinni segir séra
Friðrik:
„Nú hefst hér þáttur, sem er
mér einna hugljúfastur af minn-
ingum þessara ára; minningum,
sem reyndust drjúgum þýðingar-
miklar -fyrir mig seinna meir. Það
eru minningarnar um það, hvernig
ég komst í kynni við knattspyrnu-
íþróttina- Nokkrir piltar komu til
mín og spurðu, hvort þeir mættu
ekki stofna knattspyrnuflokk á
grundvelli KFUM. Ég gaf sam-
þykki mitt til þess með því móti,
að allt fari siðsamlega fram. Ég
hafði aldrei haft aðra hugmynd
um knattspyrnu en að það væru
hlaup eftir knetti, sem sparkað
væri í, svo að hann kæmist sem
lengst, og hlypu menn svo hver í
kapp við annan að ná knettinum.
Ég þóttist sjá að þetta væri holl og
góð hreyfing úti í vor- og sumar-
loftinu“.
Seinna þetta ár. 1911, sá séra
Friðrik æfingu hjá Val, og þá varð
eins og eldingu lysti niður beint
fyrir framan hann og hann sá fyr-
ir sér hið mikla uppeldisgildi, sem
knattspyrnan hefur.
Æ síðan sýndi séra Friðrik Val
mikinn áhuga. Hann útvegaði Val
æfingasvæði á melunum, þar sem
nú er íþróttavöllurinn og vann að
vallargerð þar með Valsmönnum
og stýrði stundum æfingum. —
Hann sá í knattspyrnunni tæki til
aukins þroska og göfgi, tæki til
þjálfunar í sjálfsaga og í því að
vinna saman að settu marki. Hann
^s4maci hei IL
ANDREAS BERGMANN
H
'ÖÍÍl
u
°f
t/nm ara
Á þessu ári, eða nánar tiltekið 18.
ágúst, átti Andreas Bergmann sjötíu
og fimm ára afmæli. Þvi mundu
raunar fæstir trúa, sem hafa horft á
hann leika sér í badminton undan-
fama vetur, eða fylgzt með áhuga
hans og þátttöku í ýmsum félags-
málum.
Andreas er gott dæmi um þá
menn sem koma inn í íþróttahreyf-
inguna, fullir áhuga fyrir málefn-
inu, og fullir vissunnar um það að
iðkun iþrótta fyrír æsku þessa lands,
ætti að vera líkamleg og andleg sálu-
hjálp, ef rétt væri að farið.
Það er rétt upp úr 1930 sem Berg-
mann fer að fylgjast með Val og fá
áhuga fyrir félaginu. Hann er trúr
áhorfandi þegar Valur leikur, og
smátt og smátt laðast hann að því.
Hann fer að gleðjast yfir sigrum fé-
lagsins og hryggjast þegar illa geng-
ur, og ekki líður á löngu þar til hann
fer að taka þátt í striti og starfi, og
í stjórn Vals kom hann 1936. Það
er því komið nokkuð á fjórða áratug-
brýndi stöðugt fyrir ungum mönn-
um að sýna góðan og göfugan leik,
að taka fullt tillit til náungans mót-
herjans síns og samherjans, í
stuttu máli, að vinna sigur á sjálf-
um sér. — Hann var leiðbeinand-
inn, en á sama tíma vinurinn og
félaginn. Hann var hið Ijúfa mikil-
menni, sem með lífi sínu og for-
dæmi sáði frækornunum í brjóst
þúsundum ungra manna, frækorn-
unum, sem hjá mörgum hafa borið
ávöxt og sem hjá öðrum munu
reynast lífseigari en þeir gera sér
ljóst.
Við Valsmenn erum af hjarta
þakklátir fyrir, í hve ríkum mæli
við nutum kærleika, áhuga og
starfskrafta séra Friðriks. Þessi
athöfn hér í dag, félagsblað Vals
og margt annað, bendir til þess,
Andreas Bergmann.
inn síðan þessi „aðkomumaður“,
sem missti af leiknum og því sem
flestir venjulegir menn leita eftir i
iþróttafélögum, gerðist félagi í Val.
Þetta var góð sending, sem Valur
fékk þann dag sem Andreas Berg-
mann byrjaði að starfa fyrir félagið,
og það má segja að síðan hafi hon-
um aldrei sloppið verk úr hendi, fyr-
ir Val, og þá komið víða við. Hann
er líka einn af þeim mönnum sem
alltaf er til viðtals um dagsins mál,
og hefir þá oftast eitthvað jákvætt
til málanna að leggja. Hann hefir
sinar ákveðnu skoðanir á hlutunum
og er ómyrkur að láta þær i ljós.
F.nn er hann í fullu fjöri í störf-
að áhrifa hans gæti enn í félaginu.
Það er ósk mín til ykkar, ungu
Valsmenn, að þessi áhrif af starfi
séra Friðriks megi ríkja hér og
dafna um alla framtíð-
I kvæði sínu, „Sögu Islands",
segir séra Friðrik:
„Gæt þess nú þjóð mín, að glatir þú eigi
Guði og dýrmætum boðorðum lians.
Fallvölt er gæfan á velsældar vegi,
veldu, hvað heyrir til friðar hvers manns.
Veljir þú Drottin, ei verður að tjóni
velsæld og hamingja, ef fellur í skaut.
Island þá verður að „farsældar fróni“
fært um að standast í sæld og í þrautí
__ H
Séra Friðrik Friðriksson lézt hér
í borg 9. marz 1961, virtur og dáð-
ur af þjóðinni allri.