Valsblaðið - 24.12.1968, Page 31

Valsblaðið - 24.12.1968, Page 31
VALSBLAÐIÐ 29 Fyrsti ritari Vals átti 75 ára afmæli á þessu ári, en hann var fæddur 15. apríl 1893, og sá at- burður gerðist á Vestra Fróðholti á Rangárvöllum. Hingað til Reykjavíkur fluttist hann með foreldrum sínum 1899, eða árið sem Knattspyrnufélag Reykjavík- ur var stofnað. Hvort nokkuð or- sakasamband sé á milli þessara at- vika, skal ósagt látið, en óneitan- lega er það skemmtileg tilviljun að einn af stofnendum Vals lætur fyrst sjá sig í Reykjavík sama árið og KR var stofnað! Víst er um það að tiikoma þessara tveggja fé- laga hefur skrifað vissa kafla í íþróttasögu þessa lands. Við Valsmenn minnumst og hyllum Hall á þessum tímamótum fyrir hans þátt í stofnun félags vors, og störf hans fyrir félagið á bernskuárum þess, og þó Hallur hafi ekki verið virkur í félags- starfinu í langan tíma, þá vitum við að hjarta hans hefur slegið í ,,takt“ við meðiæti og mótgang fé- lagsins allt til þessa dags. Hall Þorleifsson þarf ekki að kynna fyrir Valsmönnum sem komnir eru nokkuð til ára, og þó þeir hafi ekki séð hann á leikvelli í Valsbúningi, þá hefur hann eigi að síður verið í fjölda ára í sviðs- ljósinu. Hann hlaut í vöggugjöf ákaflega fagra og skemmtilega bassarödd, samfara næmum skilningi á mús- ik. Þetta leiddi til þess að hann varð að syngja og syngja, næst- um hvar sem hann var eða kom. Hann var einn af stofnendum Karlakórs KFUM. Hann söng í „kvartettum", hann söng við jarðarfarir, stjórnaði söngkórum og hann var einn af áttmenningun- um sem svo oft komu og sungu við hátíðleg tækifæri, en þeir munu hafa verið einskonar úrval úr Karlakór KFUM. Söngurinn hefur því verið líf og yndi Halls, og verið hinn rauði þráður í lífi hans. Fyrir söng sinn hefur Hall- ur verið kunnastur meðal almenn- ings. Færri munu vita um afskipti lians af íþróttum, en hann lék með aðalliði Vals í 11 ár eða frá stofn- un þess og til 1922, og oftast sem útherji. Menn vita heldur ekki að hann var frár á fæti og gat stund- um komið á óvart með hraða sín- um á þeim tíma. Eins og fyrr segir var hann í fyrstu stjórn Vals, og gegndi stöðu ritara, og þóttu fundargerðir hans snyrtilega færðar, enda hafði Hallur mjög fagra rithönd. Hallur hefur verið mjög vinsæll maður, og góður félagi, enda glað- ur í vinahóp, og meðfæddúr hjartaylur gert hann þægilegan og ljúfan í allri umgengni. Okkur í blaðnefndinni datt í hug að gaman væri að hitta Hall að máli ef hann hefði frá einhverj u að segja frá fyrstu dögum Vals, og veitti hann fúslega það leyfi. Ég lief nú ekki mikið að segja, sagði Hallur dálítið hugsandi, okk- ur datt ekki í hug að þetta tiltæki okkar væri upphaf á neinni sögu, sem síðar þyrfti eða væri gaman að rifja upp, og því síður var neitt skrifað niður frá þessum aðdrag- anda að félagsstofnun. Ég man vel hvernig það atvik- aðist að ég gekk í KFUM, en það mun hafa verið um 1908. Ég, ásamt Filipusi Guðmundssyni, lngvari Árnasyni og Torberg nokkrum, voru staddir á gatna- mótum Hverfisgötu og Vitastígs. Sjáum við þá að til okkar kemur maður, sem okkur fannst all mikil- úðlegur, og gefur sig á tal við okk- ur, en það var ekki venjulegt á þeim tíma að fullorðnir væru að ræða við okkur strákana úti á götu. Hann segir okkur að hann hafi í huga að stofna unglinga- Hallur Þorleifsson, stofnandinn, músíkant- inn og heiSursmaSurinn, meS sitt einlœga Vals-hfarta. deild í KFUM næsta sunnudag, og spyr okkur hvort við viljum koma og vera með í stofnun deildarinn- ar. Okkur leizt vel á manninn, þótti hann geðfelldur og þægileg- ur. Við féllumst strax á þetta, og ákváðum að mæta til fundarins. Maður þessi var enginn annar en sr. Friðrik Friðriksson. Auð- vitað fórum við á stofnfundinn, sem haldinn var á Amtmanns- stígnum þar sem KFUM er nú, og það vildi svo til að aðeins þessir fjórir komu á fundinn og stofnaði sr. Friðrik deildina með þessum fjórum drengjum. Á næstu fundum jókst talan stöðugt, og brátt tókst þarna hið skennntilegasta félagslíf undir forustu sr. Friðriks. Ástæðan til þess að við fórum að sparka knetti í KFUM-portinu mun vera sú að Vestur-fslending- ur að nafni Ingólfur kom hingað, og hafði með sér fótknött, sem við fengum að nota, og þar með höfð- um við fengið bakteríuna í okkur, sem leiddi til þess að Valur var svo stofnaður 1911. Það varð upp- haf ýmissa athafna hjá okkur strákunum, undir forustu sr. Frið- riks. Hafizt var handa um vallar- gerð vestur á Melum, og gekk þar Framhald á bls. 39.

x

Valsblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Valsblaðið
https://timarit.is/publication/399

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.