Valsblaðið - 24.12.1968, Side 37
VALSBLAÐIÐ
85
átt, og var stjórnandi hans þaul-
vanur sjóferðum. Var lagt af stað
snemma morguns frá Reykjavík og
stefnt fyrir Skaga. Ekki höfðum við
lengi siglt er á skall niðaþoka, svo
hvergi sá til lands, og ekkert til að
átta sig á, en áfram var haldið langa
stund, í áttina að Borgarnesi, að ætl-
að var eða vonað. Eftir alllanga sigl-
ingu, þar sem enginn vissi hvert
stefndi, sjáum við koma ut úr þok-
unni skerjaklasa einn mikinn, og
það sem var enn merkilegra, að þeg-
ar nær kom sáum við mann bera við
gráan þokubakkann, þarna á sjávar-
bökkunum og sló sá gras af miklum
móði. Léttbátur var með í förinni,
og er honum þegar skotið út og hald-
ið til lands, til þess að fregna hvar
við værum staddir á hnettinum, og
fá góð ráð. Var þetta þá bóndi einn
ofan af Mýrum, sem aflaði þarna
heyja. Sagði hann að okkur hefði
borið langt af leið, og bauðst liann
til að taka við stjórnartaumnum og
stýra hátnum til Borgarness. Tók
hann þegar stjórnvölinn í sínar
hendur, og kom okkur heilu og
liöldnu á leiðarenda. Varð skipstjór-
inn með sitt fyrirmannlega „ka-
skeyti“ að skipa hinn óæðri hekk á
meðan hóndinn á sínum kúskinns-
skóm, stýrði fimlega fram hjá skerj-
um og grynningum til fyrirheitna
landsins við Brákarey.
I Borgamesi átti að bíða okkar
kassabíll að norðan, svo sem fyrr seg-
ir, en hann var hvergi sjáanlegur.
Þegar farið var að kanna málið, kom
í ljós, að það ágæta farartæki komst
aldrei lengra en í Öxnadalsá, þar
sökk það, og náðist ekki upp fyrr en
síðar. Þá er tekið til að semja um
bil í Borgarnesi, og takast samningar
um það að flytja okkur að Bólstaðar-
hlíð, var þangað komið síðla kvölds,
eftir áfallalausa ferð.
Eftir skamma viðdvöl þar var
haldið af stað fótgangandi yfir Stóra-
Vatnsskarð og gengið lengi lengi í
lognkyrri sumarnóttinni og dásam-
legs litsýnis notið af háskarðinu, og
ekki staðnæmzt fyrr en á hlaðinu á
Víðimýri, þessum fomfræga stað, og
var þá langt liðið á nóttu. Vorum
við bæði svangir, þreyttir og illa
haldnir eftir erfiða ferð á sjó og
landi. Hugðumst við hiðjast þarna
gistingar, og nokkurrar næringar ef
mögulegt væri. Börðum við þrjú
högg á dyr, að gömlum og góðum
sveitasið, og biðum húsráðanda, en
allt kom fyrir ekki, enginn kom til
dyra.
Varð mér þá reikað út að hinni
sögufrægu torfkirkju, teygði mig
upp í klukknaportið og í kólfinn, og
sló honum i klukkuna, þéttingsfast.
Upphófst þá hinn skærasti klukkna-
hljómur, sem leið út í kyrra sumar-
nóttina, en það raskaði svefnró hús-
ráðanda, og varla voru hinir ómþýðu
hljómar þagnaðir þegar bóndinn stóð
mitt á meðal okkar eins og hefði
hann sprottið upp úr jörðinni, í svell -
þykkum ullarnærbuxum, skósíðum.
Tókum við hann þegar tali og spurð-
umst fyrir um gistingu og nokkurn
heina, en bóndi var hinn erfiðasti
viðfangs, og kvaðst hvorugt geta lát-
ið í té. Ekki tjáði að deila við dóm-
arann, fremur i þessu tilviki en öðr-
um. Þótti mér þessi mín fyrsta og
væntanlega síðasta klukknahringing
ekki hafa orðið árangursrík.
Enn var lialdið af stað, þótt þreytt-
ir værum, sifjaðir og svangir. En
heppnin hafði þó ekki alveg yfirgef-
ið okkur, því að eftir veginum rétt
fyrir utan túngarðinn á Víðimýri
brunaði stásslegur vörubíll, árgerð
1927, i áttina til okkar. Hyllti þar
undir freistandi sæti á palli, þótt
engin væri yfirbyggingin. Gáfum
við bílstjóranum merki um að stöðva,
sem hann gerði. Ræddi hann við
okkur góða stund og skýrði okkur frá
því, að hann væri nýbúinn að ljúka
bílprófi og virtist okkur sem bíllinn
og hann væru færir í flestan sjó. Var
nú um það samið að hann flytti okk-
ur til Víðivalla til að byrja með, þar
myndum við fá góðar móttökur, að
því er hann upplýsti, enda varð sú
raunin á. Þegar þangað kom, rétt
undir morgun, og við gerðum vart
við okkur, gengu heimamenn úr
rúmum, og skiptu á sængurfötum
í snarheitum, og hvildumst við þar
svo fram undir hádegi. Þá voru fyrir
okkur settar allskyns kræsingar, og
nutum við þar hinnar alkunnu is-
lenzku gestrisni og vinsemdar fólks-
ins í hvívetna. Þessar móttökur á
Víðivöllum gleymast áreiðanlega
aldrei okkur sem jieirra nutum.
Um hádegi er svo aftur stigið upp
i hinn skagfirzka „fararskjóta“ og
haldið sem leið lá yfir Öxnadalsheiði
og hina hrikalegu Giljareiti þeirra
tima, og gekk allt að óskum, nema
hvað vegarbrúnin sprakk undan
öðru afturhjóli bílsins þar sem Gilja-
reitirnir voru hvað geigvænlegastir,
hengiflug niður í ána!
Þegar við komum að Öxnadalsá
var hún í allmiklum vexti, en þar
naut hæfni hílstjórans sín hvað bezt
í allri ferðinni. Það leyndi sér ekki,
að hann hafði oft leikið þá list að
ríða straumvötn, á skagfirzkum gæð-
ingum, og þræða grynningar og brot.
Nú fór hann eins að, því að á þess-
um nýja „fáki“ sínum þræddi hann
brotin og ána upp og niður, og komst
með miklum glæsibrag með allan
hópinn vfir. Skaut hann heldur bet-
ur vini vorum. sem átti að sækja
okkur til Borgarness, ref fyrir rass.
Eftir það gekk allt vel, en hitalykt
mikla lagði af bílnum á öxnadals-
heiði, sem gaf til kynna að „blessuð
skepnan“ lagði fullmikið að sér, og
þar með var þessari bráðskemmti-
legu ferð lokið.
tmsum heimamönnum mun ekki
hafa þótt mikið til afreks okkar koma
i þessari fyrstu suðurgöngu á Islands-
mót, og heyra mátti innan um kveðj-
urnar: KA núll! KA núll! En slikt
átti eftir að taka breytingum til betri
vegar, er fram í sótti, svo sem kunn-
ugt er.
Af þessu lauslega yfirliti, um
þessa fyrstu knattspyrnuferð frá Ak-
ureyri til Reykjavíkur og heim aft-
ur, má sjá, að samskipti við önnur
fjarlægari byggðalög kostuðu þá
tíma og erfiði, sem þó enginn taldi
eftir, en minnast síðar með mikilli
ánægju.
Dvölin i KA og íþróttalífið þar var
mjög skemmtilegt, enda voru þar
margir ágætir menn, og siðar þjóð-
kunnir m. a. á iþróttasviðinu, sem
hafa verið mér æ síðan kærir og
minnistæðir.
Má ]>ar nefna Hermann Stefáns-
son, Tómas Steingrímsson, Helga
Schiöth, .Takob Gíslason, Jón og
Eðvarð Sigurgeirssyni, svo að nokkr-
ir séu nefndir af mörgum útvöldum.
Þess má geta hér, að á 40 ára af-
mæli félagsins sýndu þeir KA-menn
mér þann mikla heiður, að gera mig
að heiðursfélaga, sem vissulega var
meira vinarbragð en ég verðskuld-
aði. En ég er mjög þakklátur fyrir
þetta, um leið og mér er það mikið
gleðiefni hversu KA hefir dafnað vel