Valsblaðið - 24.12.1968, Síða 56
54
VALSBLAÐIÐ
Albert me'Ö höfuS og herSar yfir hina.
um, þar sem það þykir mikið í mun
að segja áhorfendum frá því að
Guðmundsson leiki með.
Ýmislegt annað kemur fram í
blöðum þessum um aðrar hliðar á
Albert, sem þeim þykir mikið til
koma í fari hans og verður aðeins
að því vikið síðar í þessari grein.
Það má því eftir atvikum við
það una að fá að birta nokkuð úr
blöðum, um snilli Alberts, en bíða
þá betri tíma ef hann síðar vildi
segja frá, eins og hann fann til, og
lifði þessa atburði.
Því miður er ekki hægt að birta
nema brot af öllu sem þar var, en
reynt verður að fylgja svolítið
tímaröðinni.
Það þótti nokkur viðburður,
þegar Albert Guðmundsson gerði
samning við erlent atvinnumanna-
lið, en frá því segir Sunday Mail
7. okt. 1945 á þessa leið:
— Þetta er sagan um það, þegar
Albert Guðmundsson, hinn snjalli
íslenzki knattspyrnumaður, skrif-
aði undir samninga hjá Rangers.
Fyrir tveim árum kom Murdoch
Mc Dougall, sem var þjálfari á ís-
landi, en það er tvennt sem hann
unni mest, en það var: Knatt-
spyrna og Rangers. Þá lék Albert
fyrir Val, og Murdoch sá strax að
hann var fæddur knattspyrnu-
maður. Hann var ákveðinn að Al-
bert kæmist til Skotlands. Ég var
staddur á St. Enoch-Hótelinu, þeg-
ar Guðmundsson skrifaði undir
sem áhugamaður, og Murdoch stóð
við hlið hans. Hann kinkaði kolli,
það þurfti ekki að segja hvernig
honum var innanbrjósts!
Ykkur er óhætt að trúa því, að
þessi hái íþróttamannslegi, 22 ára
gamli maður verður sannarlega-
mikið umtalaður hér í borginni.
Hann er stórkostlegur, verður
hér a. m. k- í eitt ár á verzlunar-
skóla.
Sem nýliði fær Albert góða dóma
þarna hjá Rangers og safnar þar
dýrmætri reynslu um þetta starf
sem hann dreymir um og innst
inni vinnur markvisst að.
Það talar sínu máli um frammi-
stöðu Alberts meðan hann leikur
með Rangers, að réttu ári síðar
gerir hann áhugamannasamning
við Arsenal í London. Arsenal var
þá og er enn eitt virtasta atvinnu-
mannalið Bretlandseyja, og þekkt
um allan heim. Þangað komast
færri en vilja, og nánast aðeins út-
valdir.
Um þessa ráðningu segir „The
Evening News“:
„Islendingur gerist leikmafkir
hjá Arsenal“.
Arsenal er alltaf í fréttunum. I
dag urðu þeir fyrstir til þess, í
sögu enskrar deildakeppni, að
gera samning við íslenzkan knatt-
spyrnumann.
I dag var tilkynnt, að Albert
Gudmundsson, miðherji íslenzka
liðsins, sem nú keppir hér, hefði
undirritað áhugamanna-samning
hjá Arsenal.
Þeir, sem sáu Guðmundsson
leika sinn fyrsta leik með íslenzka
liðinu móti Dulwich Hamlet, munu
ekki undrast þessa ákvörðun Ar-
senals-
Þrátt fyrir það, að Hamlet-liðið
væri mun betra, var Guðmundsson
örugglega bezti leikmaður vallar-
ins. Hár, beinvaxinn, með glæsi-
lega knattmeðferð, alltaf á réttum
stað á réttu augnabliki.
1 þessu sama blaði var einnig
grein um Albert undir fyrirsögn-
inni: Iþróttamaður vikunnar.(The
Weeks Sports Personality).
Þar segir m. a.: — Leikmaður
með mikla möguleika, að áliti Tom
Whittaker, framkvæmdastjóra
Arsenal, sem hefur séð hann æfa
á Highbury þessa viku og leika
gegn Walthamstow. Hann mun
vera einn af þeim fáu áhugamönn-
um, er komast í fyrsta lið Arse-
nal, en hinir eru þeir: Dr. Kervin
O’Flanagan, írski landsliðsmaður-
inn og Bernard Joy, enski lands-
liðsmaðurinn. Guðmundsson hefur
þegar klæðzt Arsenal „undra-
kyrtli“....
Lundúnablað segir í nóv 1946
um leik:
Sparta (Tékkóslóvakíu) Arse-
nal (England) 2:2:
.... Undragóður leikur Islend-
ings gegn hinu fræga knattspyrnu-
liði frá Tékkóslóvakíu, Sparta,
bjargaði enska knattspyrnuheiðr-
inum í jafnteflisleik sem lauk með
2:2-
Albert Guðmundsson áhugamað-
ur lék „stórleik“ í sínum fyrsta
leik með Arsenal. Það var hans
skot, sem endaði í marki andstæð-
inganna, eftir að hafa komið í
varnarleikmann, þegar „stærri
stjömur brugðust . . .
*
. .Enskt blaS sama haust:
Fyrirliði Arsenal, Joe Mercer,
og fyrirliði landsliðsins enska
sagði í blaðaviðtali um Albert
Guðmundsson: „Albert getur bók-
staflega gert allt með knöttinn,
næstum fengið hann til að tala.“
Vafalaust hefði Albert ílenzt
hjá Arsenal, ef ensk félög hefðu
mátt taka útlendinga í atvinnu-
manna lið sín, en því var ekki að
heilsa, svo hann verður að yfir-
gefa félagið, auðugri að vinsæld-
um og reynslu. Og Albert veit
hvað hann vill, og flytur sig yfir
„Canalinn", því Frakkar höfðu
engin bannfyrirmæli varðandi
knattspymumenn.
Það er Nancy í Frakklandi, sem
tekst að ná samningum við Albert.
Það virðist sem félaginu hafi ver-
ið mikil nauðsyn að styrkja lið
sitt, og um þetta segir eitt frönsku
blaðanna:
.... Nancy kynnir bezta knatt-
spyrnumann Evrópu fyrir París-
arbúum.
Án „stjörnu" síðasta starfs-
tímabils átti knattspyrnufélagið
Nancy ekki marga unnendur. Um
langt skeið leit helzt út fyrir, að