Almanak Ólafs S. Thorgeirssonar - 01.01.1905, Blaðsíða 50
22
hann einn hinna merkustu manna í sögu landsins,
þegar alt er til greina tekiö. Hann er eiginlega
nú sem stendur æösti maöurinn í landinu, átrún-
aöargoð allra Kanadamanna,— sá maðurinn, sem þeir
dást mest að og bera nresta lotningu fyrir —■ alveg á
sama hátt og Sir John Macdonald var það á sinum tíma.
Hann er fæddur í borginni Quebec 20. nóv. 1841
af frakkneskum foreldrum. Faðir hans var landmælinga-
maður og fastur í lund. Forfeður hans voru ýmist kunn-
ir að ágætum hæfileikum í reikningsáttina eða í áttina til
íagurra lista. Hvorirtveggja hfileikarnir koma fram í
fagurri einingu hjá Faurier, þar sem hann er fyrirtaks
hagsýnn stjórnmálamaður og snildar ræðuskörungur.
Hann aflaði sér ungur vanalegrar skólainentunar,
útskrifaðist af lærða skólanum í þorpinu L’Assomption,
þar sem hann var alinn upp, tók síðan að lesa lög við
McGill háskólann og fekk þar fljótt það orð, að taka þar
öllum lögfræðisnemendum fram að ljómandi gáfum.
Einkum komu ræðumanns hæfileikarnir fljótt í ljós í
námsmanna félagsskapnum við háskólann. En þótt liann
væri öllum fremri, veittu menn þvi þegar eftirtekt, að
hann átti aldrei neina óvini né öfundarmenn, heldur á-
vann sér aðdáun og kærleika þeirra, er hann umgekst.
Þegar ?"nn hafði tekið lögfræðispróf, tók hann t>l
starfa í fél? við eldri lögfræðing árið 1864. Til þings-
ins í Quebc fylki var hann kosinn sjö árum síðar Q871J
og að þrenmr árum liðnum (1874) til allsherjar þings
Ivanada. Þegar hann hafði flutt fyrstu ræðu sína á því
þing'i, gekk enginn úr skugga um, að þar var atkvæða-
maður á ferðinni, sem mikið mundi láta til sín taka síðar.
Var til þess tekið, hvílíkt vald hann hefði á enskri tungu,
J