Almanak Ólafs S. Thorgeirssonar - 01.01.1905, Blaðsíða 76
4s
>rkja nálega hvern blett, og veröa þarna þá einhverjar
hinar fögrustu mannabygðir á hnettinum. En hundrað
ár, jatnvel fimtíu ár, eru langur tími. Þess konar stór-
virki gjörast eklci á einum degi. Fyrsta og önnur kyn-
slóöin, sem að því vinnur, ber ekl<i mikinn sigur úr být-
um. ,En úr því fara rjóðrin að stækka og árangurinn að
verða meiri. Því þó jarðvegurinn sé þarna víðast hvar
fremur ófrjór, vex furðanlega í honum sökum frábærrar
veðursældar, svo öll líkindi eru til, að landflæmi þetta gefi
mjög mikið af sér, þegar mannshöndinni hefir tekist að
yrkja það og rækta.
Eins og timbrið cr aðai-afurð landsins og aðal-
atvinnuvegur fjöldans, er fiskurinn og sjávarúthaldið
auðsuppspretta fyrir marga, er það stunda. Idafið og árn-
ar er, eins og kunnugt er, óumræðilega auðugt á þessu
svæði. Það má svo að orði kveða, að þarna séu laxakist-
ur alls heimsins. Því. í samanburði við það, sem þarna
veiðist, er öll laxveiði önnur eins og örlítið sandkorn.
Þriðja grein atvinnunnar, sem heldur þessum stór-
borgum við, er verzlunin og einkum og sér í
lagi verzlunin við Austurlönd, sem hin síðari
ár hefir aukist og margfaldast. Þessi Austurlanda-verzl-
un má því álítast eitt þýðingarmesta atriðið fyrir framtíð
Kyrrahafsstrandarinnar. Viðskiftin, sem nú eru komin á
við Austurlönd og búast má við að margfaldist í nálægri
framtíð hljóta að verða óumræðileg auðsuppspretta fyrir
borgirnar, sem þarna sitja fyrir henni. Enda má búast
við, að þau hafi margföld áhrif og mikilvæg á heimsverzl-
unina alla og beina henni inn í öldungis nýjan farveg.
Tacoma er indæll bær, öllu skemtilegri að mér fanst
en Seattle, þó miklu minni sé. Hefir sú borg verið nefnd