Almanak Ólafs S. Thorgeirssonar - 01.01.1905, Blaðsíða 122
94
þrifsráöa. Þefr Donald A. Smith og Taché fengu
fljótt frelsi sitt aftur og fyrir viturlegar fortölur þeirra
tókst þeim aö koma friði á með nýlendumönnum og
fá Riel og þá alla til að kannast við lögsagnarvald
þingsins í Kanada og játast undir það. Sendu þeir
nefnd manna austur til Ottawa til að leggja kærumál
sín fyrir stjórnina. Hafði alt þetta þann árangur, að
Manitoba var gjört að fylki (.Province), en ekki hér-
aði (Territory), eins og áður var til ætlast. En með
því móti fengu nýlendumenn sjálfir fulla heimastjórn
í ölium fylkismálum.
Mjög var stjórninni legið á hálsi fyrir að hegna
Riel ekki fyrir uppreistina ogeinkum fyrir líflát Scotts,
sem var gamall Ontario-fylkismaður. Einkum voru
æsingar miklar með mönnum þar í fylkinu út af þessu,
því þar var bróðir Scotts og ættmenni önnur til eftir-
mála. Ivomst það svo langt, að íylkisþingiö lagði
5000 dollara til höfuðs Riel. Aftur átti hann með-
haldsmenn marga og mikilhæfa í Quebec-fylki svo
ekkert varð úr málarekstri gegn honum. Og við
kosningar þær, er fram fóru 22. janúar i8y4var Riel
kosinn til þingsetu í Ottawa írá Provenchcr-kjördæm-
inu, þar sem allur fjöldinn af frakknesku fólki í Mani-
toba átti heima. Komst hann klaklaust til Ottawa,
ritaði nafn sitt á þingmannalistann og undir þing-
menskueiðinn. En af því sem hann átti kæru yfir
höfði sér fyrir dómstólunum í Manitoba, voru óvinir
hans sér út um skipun til að taka hann fastan, Óvíst
er, að þeirri skipan hefði nokkurn tíma framfylgt orð-
ið. svo mikið meðhald hafði hann á hæstu stöðum.
En hann var hræddur um sig og sat ekki á þingi. Var
þá loksins borin fram tillaga um, að honum væri ski
að að sitja á þingi 1. apríl. En þegar hann lét ek
ájá sig þar, var hann tveim vikum síðar gjörður ræk
afjþingi, og greiddu þó 68 þingmenn atkvæði á mó
En fimm mánuðum síðar fóru nýjar kosningar fram í