Almanak Ólafs S. Thorgeirssonar - 01.01.1905, Blaðsíða 116
88
ingar á Islandi og mæla móti því, aS hún héldi því á-
fram, þar sem blaöiö væri svo illa úr garði gjört. I 22.
tölublaöi Leifs 1884 birtir ritstjórinn yfirlýsing nokk-
urra manna út af þessu og hljóðar hún svo:
,,Samkvæmt ósk herra Helga Jónssonar, eiganda
og ritstjóra Leifs, látum vér undirskrifaðir það álit
vort í ljós að ónauðsynlegt sé að kvarta við Ivanada-
stjórn urnritstjórn Leifs, og að aðferðsú. sem mótstöðu-
inenn ritstjóra Leifs hafa við haft, sé óheppileg og
árangurslaus. Enn fremur, að vér erum ánægðir með
ritstjórn Leifs hingað til, eftir kringumstæðum, og
berum það traust til eiganda hans, herra Helga Jóns-
sonar, að hann haldi áfram að bæta hann, hér eftir
eins og að undanförnu, svo blað hans verði Islend-
ingum til heiðurs og uppbyggingar, “ Undir þessa
yfirlýsing rituðu meðal annara síra Jón Bjarnason,
Árni Friðriksson, Eyjólfur Eyjólfsson og Sigtryggur
Jónasson. Varð því ekkert úr þeirri fyrirætlan að
koma á ritsjóraskiftum við blaðið. Mun Frím. nú hafa
snúiö sér að því að halda námi sínu áfram hér í Winni-
peg. Þess er getið í Leifi 12. júní sumarið 1885. að
hann hafi tekið stúdents próf við Manitoba-háskólann
og oröið Bachelor of Arts við vorprófin með bezta
vitnisburði einkum í náttúruvísindum. Voru honum
veitt $80 verðlaun fyrir þá frammistöðu sína í pening-
nm. Um sumarið mun hann hafa dvalið í Winnipeg,
því 19. okt. er þess getið, að hann hafi flutt fyrirlest-
ur um Manitoba og Norðvesturlandið og stendur á-
grip af því erindi í blaðinu.
Frímann Anderson mun hafa verið 27 ára gamall