Almanak Ólafs S. Thorgeirssonar - 01.01.1905, Blaðsíða 88
f
60
margir landar. höfðu tekið sér þar bólfestu um tíma. En
nú eru fléstir þeirra komnir annað hvort til Blaine eða
J[)<á Marietta. I þorpinu Marietta kom eg fyrst til gamals
kunningja míns frá Pembina, Eyleifs Guðmundssonar,
Skaftfellings, og var þar ágætt að koma; eru synir hans
cínilegir menn. Rétt við hlið hans búa hjón ein islenzk
frá Minnesota, Mr. og Mrs. Hólm. Þar vorum við Jón
Reykdal í bezta yfirlæti og voru þau hjón hvort öðru ást-
úðlegra og heimili þeirra hið snotrasta. Um kveldiö
flutti eg guðsþjónustu í skólahúsi þar xyrir fólki all-
mörgu; var þar eftirtekt svo góð, sem bezt mátti verða,
og gladdi það mig þeim mun meir, sem ókyrrleiki var
mikill í Blaine og erfitt þess vegna'að tala. Þarna hitti
eg vin minn, Sumarliða Sumarliðason, ernan og kátan
cins og æskumaður væri. Hafði þó staðið við slátt dag;
eftir dag með orfi og ljá í sumarhitanum um nokkurn
tima fyrirfarandi. Var það hjá manni einum, er eg þarna
hitti fyrsta sinni,Guðbrandi Vestmann, ættuðum af Vest-
fjörðum eða þaðan vestur hingað kominn, — náskildur
dr. Jóni Þorkelssyni yngra. Hefir hann verið all-lengi
vestur á ströndinni; ein 15—16 ár að minsta kosti, enda
á hann nú eina stærstu bújörðina, sem nokkur íslending-
ur á þar, einar 80 ekrur. Eru líkur til, að það verði mik-
ils virði áður langt líður, því Bandaríkjastjórn er að gera
umbætur, sem þurka upp mikinn hluta af landareigninni,
sem áður hefir staðið undir vatni.. Er Guðbrandur þessi
skýrlegur maður og myndarlegur eins og hann á ætt tik
Dvaldi hann um nokkurn tima í Gardar-bygð áður hann
fluttist vestur..
Þarna hitti eg líka Steingrím Hall f'Hallgrím^son),
bróður Jónasar Hall á Gardar, og marga gamla kunn-