Almanak Ólafs S. Thorgeirssonar - 01.01.1905, Blaðsíða 146
Canada-Norvesturlandid.
REGLUR VIÐ LANDTÖKU.
Af öllum sectiouum með jáfnri tölu, sem tilheyra sambandsstjórninni, í.Manitoba og
Norðvesturlandinu, nema 8 og 26, geta fjölskylduhöfuð og karlmenn 18 ára gamlir eða eldri,
ekið sér 160 ekrur fyrir heimilisréttarland, það er að segja, sé landið ekki áður tekið, eða
sett til síðu af stjórninni til viðartekju eða einhvers annars,
INNRITUN.
Menn mega skrifa sig fyrir landinu á þeirri landskrifstofu, sem næst liggur landinu, sem
tekið er. Með leyfi innanríkisráðherrans, eða innflutninga-umboðsmannsins í Winnipeg.
geta menn gefið öðrum umboð til þess að skrifa sig fyrir landi, Innritunargjaldið er Sio.
HEIMILISRÉTTAR-SKYLDUR.
Samkvæmt núgildandi lögum & erða landnemar að uppfylla heimilisréttar-skyldur sínar á
einhvern af þeim vegum, sem fram eru teknir í eftirfylgjandi töluliðum, nefnilega:
[1] Að búa á Jandinu og yrkja það að minsta kosti í sex mánuði á hverju ári í þrjú ár.
[2] Ef faðir (eða móðir. ef faðirinn er látinn) einhverrar persónu, sem hefir rétt til að
skrifa sig fyrir heimilisréttarlandi, býr á bújörðí nágrenni við landið, sem þvílík persóna hefir
skrifað sig fyrir sem heimilisréttarlandi, þá geiur persónan fullnægt fyrirmælum laganna, að
því erábúð á landinu snertir áður en afsalsbréf er veitt fyrir því, á þann hátt að hafa heimili
hjá föður sínum eða móður.
[3] Ef landnemi hefir fengið afsalsbiéf fyrir fyrri heimilisréttar-bújörð sinni, eða skír-
teini fyrir að afsalsbréfið verði gefið út, er sé undirritað í samræmi við fyrirmæli Domioinn
landlaganna, og hefir skrifað sig fj'rir síðari heimilisréttar-bújörð, þá getur hann fullnægt
fyrirm.ælum laganna, að því er sngrtir ábúð á landinu (síðari heimilisréttar-biijörðinni) áður
en afsalsbréf sé gefið út, á þann hátt að búa á fyiri heimilisréttar-bújörðinni, ef síðari heim-
ilisréttar-jörðin er í nánd vlð fyrri heimilisréttar-jörðina.
[4] Ef landneminn býr að að staðaldri á bújörð sem hann á (hefir keypt, tekið í erfðir o,
s. frv.) í nánd við heimilisréttarland það, er hann hefir skrifað sig fyrir, þá getur hann full-
nægt fyrirmælum laganna, að því er ábúð á heimilisréttar-jörðinni snertir, á þann hátt að búa
á téðri eignarjörð sinni (keyptu landi o. s. frv.).
BEIÐNI UM EIGNARBRÉF
ætti að vera gerð strax eftir að 3 árin eru liðin, annaðhvort hjá næsta umboðsmanni eða hjá
Inspector sem sendur er til þess að skoða hvað unnið hefir verið á landinu. Sex mánuðum
áður verður maður þó að hafa kunngert Domiliion landa umboðsmanninum í Ottawa það, að
liann ætli sér að biðja um eignarréttinn.
LEIÐBEININGAR,
Nýkomnir innflytjendur fá á innflytjenda-skrifstofunui í Winnipeg, og á öllum Dominion
landa skrifstofum innan Manitoba og Norðvesturlandsins, leiðbeiningar um það hvar lönd er
ótekin, og allir, sem á þessum skrifstofum vinna, veita innflytjendum, kostnaðarlaust, leið-
beiningar og hjálp til þess að ná í lönd sem þeim eru geðfeld; ennfremur allar upplýsingar
viðvíkjandi timbur, kola og náma lögum. Allar slíkar reglugjörðir geta þeir fengið þar gef-
ins, einnig geta menn fengið reglugjörðina um stjórnarlönd innan járnbrautarbeltisins í Brit-
ish Columbia, með því að snúa sér bréflega til ritara innanríkisdeildarinnar í Ottawa, inn-
flytjenda-umboðsmannsins í Winnipeg, eða til einhverra af Dominion landa umboðsmönnum
í Manitoba eða Norðvesturlandinu.