Almanak Ólafs S. Thorgeirssonar - 01.01.1905, Blaðsíða 59
3i
stjórnað af ráði einu; var Donald Smith kvaddur til a®
vera meðlimur þess. Seinna var hann sendur á sambands-
}úng Kanada frá Selkirk-umdæmi og þar sat hann oftast
nær, þangað til árið 1896. Þá var hann kvaddur til að
vera fulltrúi Kanada í Lundúnaborg sem Lord High
Commissioner og þeirri stöðu gegnir hann enn.
Stærsta þrekvirkið og þýðingarmcsta, sem hann hef-
ir fyrir Kanada unnið höfum vér samt ekki minst á enn.
'Þegar tímar liðu fram, var farið að tala um járnbrautar-
tengsl frá liafi til hafs í Kanadalöndum. Um leið og það
kom til tals, gjörðist Donald Smith helzti hvatamaður-
inn. í járnbrautarmálum hafði hann þegar nokkura
íeynslu, þar seni hann hafði í félagi við Janics J. Hill
irá St. Paul og George Stephcn útvegað fé til St. Paul
°g Kyrrahafsbrautarinnar, er J. j. Hill gjörðist umsjón-
armaður )'fir. Út úr þessu félagi myndaðist annað félag
með hér um bil alveg sömu mönnum, er tók að sér að
koma Kanada Kyrrahafsbrautinni á. Til þess starfa var
Donald Smith allra manna bezt kjörinn.því enginn þekti
lands lag og ic'fts eins vel og hann,frá því hann var. fakt-
or Hudson-flóa-félagsins. Þegar hann fiutti það mál
fyrir Sir Jolin Macdonald léði hann því fljótt eyru. Þeg-
ar liann sýndi lionum fram á, hvílíkar auðsuppsprettur
landflæmi þetta hefði í skauti sínu, varð hann hugfang-
inn. En þegar hann bauðst til að vera einn af þeim, er
tækist stórvirki þetta á hendur, var Sir John eigi lengur
efablandinn, heldur upp til handa og fóta og studdi fyrir-
tækið með ráð og dáð og öllum þeim einkennilega dugn-
aði, er hann átti yfir að ráða. Sir Charles Tupper hefir
gefið Donald Smith þenna vitnisburð: „Kanada Kyrra-
íiafsbrautin hefði eigi verið til þann dag í dag, þrátt fyrir