Almanak Ólafs S. Thorgeirssonar - 01.01.1905, Blaðsíða 119
9i
Eftir fund þenna voru lög félagsins birt á prenti. Er
þar tekiö fram í fyrstu grein, aö félagið hafi stofnaö
veriö af meðlimum kvenfélagsins íslenzka í Winnipeg.
Bindindis-loforðið hljóöaði svo:
,, Eg undirgengst og lofa hátíölega viö drengskap
minn svo lengi sem eg erí félagi þessu, að neyta ekki
neins áfengs drykkjar, hverju nafni sem nefnist, nema
að því leyti, sem leyft er í 2. grein laga þessara, ekki
heldurað gefa eða seljaeður lána þá nokkurum manni
í mínu eigin eða annarra manna nafni, og yfir höfuð
með öllu leyfilegu móti hamla allri annarri nautn slíkra
drykkja en þeirri. sem undan er tekin í 2. grein laga
þessara. “ Þessi undantekning var, að njóta mætti
áfengis að læknisráði og við altarisgöngu,
Sumarið 1885, 5. ág., hélt félagið ársfund sinn,
B^afði þá tala félagsmanna að eins aukist um sex síð-
an um veturinn. Segir Leifur, að fundurinn hafi ver-
ið daufiega sóttur og að í félaginu séu 86 manns, mest
unglingar og kvenfólk. Á fundinum var bent á það.
hve bindindisstarfsemin væri nú að ná mikilli út-
breiðslu á lslandi, Good-templaradeild komin á í
Reykjavík, alþingi send áskorun til að hefta þetta átu-
mein mannfélagsins, enda hundrað ár rétt liðin síðan
fyrsta ritið var samið um skaðsemi áfengra drykkja af
dr. Rush í Bandaríkjunum, og bindindisstarfsemin
með því riti hafin, fyrst' í Bandaríkjunum, en þaðan
breiðst smám saman út um Norðurálfulöndin. Þrá}t
fyrir alt þetta væru nú íslendingar í Winnipeg svo
sinnulausir í þessu efni, að lítið yrði ágengt. í næsta
blaði voru nöfn allra félagsmanna birt, til þess það
yrði heyrum kunnugt, hverir í bindind'sfélagi þessu
væru.
36. Uppreist kynblendinga.
Þegar hingað er komið sögunni, verðum vér um
stund að snúa huga vorum frá íslenzku nýlendunni í