Almanak Ólafs S. Thorgeirssonar - 01.01.1905, Blaðsíða 73
45
Ballard. Gekst síra Runólfur Runólfsson fyrir því, með
tilstyrk góðra manna. Hann stóð þá í sambandi við
General Council og hefir um nokkur ár þjónað löndum
vorum í Utah.. En ekki urðu Ballard-íslendingar lengi
ánægðir með hann og varð hann þvi eftir skamma stund
að hverfa þaðan. Var þá söfnuðurinn prestslaus og varð
það þá úr, að hann samdi við Jónas A. Sigurðsson um
prestsþjónustu að einhverju ofurlitlu leyti, þótt hann
hefði ciginlega lagt pr'estsskap niður og væri ekki lengur
í þjónustu krkjufélagsins. Hcfir hann því haldið uppi
sunnudagsskóla og haft guðsþjónustusamkomur einu
sinni í mánuði hverjum.
Ráðlag þetta mun mörgum hafa mjög á móti skapi
vcrið, einkum lang-flestum þeirra, er lengst höfðu í söfn-
uði verið og bezt voru kunnir ástæðum öllum og undan-
genginni sögu.. Þess vegna eru þeir að eins ör-fáir, sem
hallast hafa að þessari safnaðarstarfsemi og viljáð vera
henni sinnandi. Allur fjöldi manna stendur þar fyrir ut-
an, ýmist afskiftalausir eða andvígir. Einstöku góðir
menn hafa þó léð þessu fylgi sitt, álitið fyrirkomulag
þetta að eins til bráðabirgða og betra að veifa röngu tré
en engu, méðan ekki væri annars kostur.
Samkomuhúsi hefir verið komið upp ekki ósnotru og
titan um það hefir dálítið félagslíf myndast. Lestrarfélag
hafa íslendingar þar, sem Vestri nefnist, og heldur það
fundi all-tiða. Blað hefir félagið ofurlítið, skrifað, og er
Mr. Sigurðsson ritstjóri. Er það lesið upp til fróðleiks
og skemtunar á fundum, en ekki voru allir ánægðir með
efnið, né heldur það, hvað þar hafði stundum óvægilega
verið sveigt að mönnum og málefnum, og álitu það frem-
ur til að sundurdreifa en samansafna.