Almanak Ólafs S. Thorgeirssonar - 01.01.1905, Blaðsíða 137
109
fram af öörum Stefán Eyjólfsson, bóndi aö Gardar,
Jón Thordarson, hveitikaupmaöur aö Hensil og Pétur
Jónsson Péturssonar Skjöld, kaupmaöur aö Hallson.
Nú í haust var þar einnig nj'r þingmaöur kosinn,
sem mörgum er að góöu kunnur, Hann heitir Jósef
Sigvaldason Walter og er bóndi í grend viö Gardar,
en bróðir Björns Sigvaldasonar. í Argyle. í hópi
Vestur-íslenzkra bænda erhann einn hinn allra fremsti
fyrir fiestra hluta sakir. Hann er fæddur að Prests-
hvammi í Þingeyjarsýslu 13. apríl 1858, en varö fööur
sínum A bak aö sjá, er hann var að eins tveggja ára
gamall. Var hann þá til fósturs tekinn af Hósíasi
Björnssyni, móðurbróöur sínum. Ólst hann upp með
honum í Jórvík í Breiðdal í Suöur-Múlasýslu, þangaö
til hann var kominn á tvítugsaldur. Fluttist hann þá
til Ameríku árið 1878. Var hann í hópi þeirra, er
settust að í Nova Scotia og þar dvaldi hann í tvö ár.
Þaðan fór hann til Winnipeg og var þar á annaö ár.
En seint um haustiö 1881 fluttist hann til nýlendunn-
ar íslenzku í Pembina County í Noröur-Dakota í grend
við Gardar og þar hefir hann síðan búiö. Ofurlítiö
mun honum hafa fénast þann tímann, sem hann
dvaldi hér í Winnipeg. En ekki voru efnin mikil hjá
honum fremur en flestum öörum, þegar hann fórfyrst
að búa. Hann kunni manna bezt að fara aö ráöi
sínu og varð oft miklu meira úr litlu en mörgum þeim
er meira höfðu undir höndum. Enda á hann duglega
konu og forsjála, sem átt hefir óvanalega rnikinn þátt
í góðri búsýslu. Lék þeim búskapurinn í hendi og
var þó jörðin, er þau fyrst eignuðust, fremur kosta-
rýr og varð aö ryðja af henni öröugum skógarleifum,
áður hægt væri að nota hana til kornyrkju. En smám
saman voru kvíarnar færöar út og einni jörðinni bætt
við aðra hingað og þangað um bygðina og gengu þær
oft kaupum og sölum, en,þar hefir Jósef reynst flest-
um mönnum hepnari og hygnari og græddist honum