Menntamál - 01.12.1941, Page 90

Menntamál - 01.12.1941, Page 90
184 MENNTAMÁL Erindi, sem snerta afgreiðslu Menntamála, sendist í Pósthólf 616 Rvík. Kennaraþing. Ráðgert er, að kennaraþing verði haldið á vori komanda. Liggja nokkur merk mál til umræðu. Væri æskilegt, að það yrði fjölmenn- ara en síðasta þing. Þingboð verða væntanlega send út um þær mund- ir, er þetta hefti berst til kaupenda. Landsamband opihberra starfsmanna. í tvö undanfarin ár hefur verið unnið að stofnun sambands opin- berra starfsmanna. Nú er svo komið, að samband þetta er formlega stofnað og er tekið til starfa. í sambandinu eru starfsmenn ríkis og bæja. Stærstu samtökin innan sambandsins munu vera S. í. B., Starfsmannafélag Reykjavíkur og félag póstmanna og símafólks. Stjórn hefur verið kosin og er formaður hennar Sigurður Thorlacíus. Vænt- anlega verður nánar getið í næsta hefti um stofnun Sambandsins og tilgang þess. Sumardvöl barna. Þegar þetta hefti er prentað, hefur sumardvalarnefnd í Reykjavík verið skipuð á ný. Gert er ráð fyrir að vorskólar falli niður eins og síðastliðið vor. Reynsla nefndarinnar frá s. 1. sumri ætti að létta að nokkru störfin. Pjársöfnun til styrktar börnum, mun bráðlega hefj- ast. Enn sem komið er, virðist þó áhugi foreldra fyrir sumardvöl barna í sveit, vera heldur minni en í fyrra. Stafar þetta nokkuð af því, að seinagangur varð á brottflutningi barna í fyrra, einnig komu þá fyrir mistök, sem ekki mega endurtakast. RITSTJÓRI: GUNNAR M. MAGNÚSS. Vegamótum, Seltjarnamesi. Utanáskrift til afgreiðslunnar: Pósthólf 616, Reykjavík. Útgáfustjórn: Hannes J. Magnússon, Akureyri, Jónas B. Jónsson, Reykjavík, Ólafur -Þ. Kristjánsson, Hafnarfirði.

x

Menntamál

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Menntamál
https://timarit.is/publication/376

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.