Heimilisblaðið - 01.01.1955, Síða 5
HEIMILISBLAÐIÐ
44. árgangur, 1.—2. tölublaS — Reykjavík, jan.—jebr. 1955
niM ííi MmimM
„Þegar ég heyrði í æsku sög-
una úr Biblíunni af því, er
bræður Jóseps seldu hann
mansali, var ég óhuggandi. Ég
lét ekki huggast fyrr en ég var
fullvissaður um það, statt og
stöðugt, að það viðgengist ekki
lengur og væri meira að segja
stranglega bannað að selja
fólk. — Þessi æskuminning
rifjaðist ljóslega upp fyrir mér
fyrir nokkrum mánuðum, er
ég, nú fullvaxta maður, kom
á þrælamarkað í Arabíu . . .“
Hann sat hjá okkur, sól-
brenndur með upplitað hár,
hinn víðförli franski blaða-
maður, sem hafði ferðazt um
þvera og endilanga Afríku, til
þess að leita uppi leynistigu
þrælasölunnar. Það fór hrollur
Um okkur við sögu hans, því að
er nokkur til á meðal okkar,
sem ekki hefur þótzt vera þess
fullviss, að mansal sé beinlínis
óhugsandi á okkar tímum?
Og þó eru enn þann dag í
dag um það bil 5000 blökku-
manna, kvenna og barna seld
mánaðarlega, alveg eins og
hestar og nautgripir á búfjár-
mörkuðum hjá okkur. I Saudi-
Arabíu einni er, samkvæmt
skýrslum Sameinuðu þjóð-
anna, hérumbil hálf önnur
milljón þræla.
Ef við lítum á landabréf af
Afríku, sjáum við, að þar sem
eyðimörkin Sahara snertir
landamæri spánsku nýlend-
unnar Rio de Oro, rísa Iguidi-
fjöllin upp úr tilbreytingalausu
sandhafinu. Þar búa þræla-
veiðimennirnir, af ættum Bed-
úína og Túarega, á sífelldum
flótta undan vökulli eyðimerk-
urlögreglu frönsku útlendinga-
herdeildarinnar.
Eyðimerkursynir þessir ráð-
ast í litlum en vel vopnuðum
hópum inn í negrahéruðin við
landamæri Franska Súdans,
Gíneu, Kameruns og Frönsku
Mið-Afríku. Þeir umkringja
afskekkt þorp að næturlagi og
safna íbúunum saman. Svo
þegar dagur rennur upp yfir
auða kofana, eru íbúarnir þeg-
ar komnir langt burt frá heim-
ilum sínum. Ránsmennirnir
reka þá hratt áfram með for-
mælingum og svipuhöggum.
Þeir fá ekki að hvíla sig, fyrr
en þeir eru komnir út úr frum-
skóga- og savannahéruðunum,
út í eyðimörkina. Þeir verða
Ein hinna elztu verzlunarleiSa heimsins: ÞrœlaslóSin. ... I hinum eySilegu
fjallgörSum við vesturjaSar Sahara eru jylgsni þrælasalanna. HéSan takast
j>eir á hendur ránsjerSir sínar til hinna byggSu svæSa MiS- og Vestur-Ajríku,
Eritreu og Uganda. 5000 km. þvert yjir meginlandiS liggur þrœlaslóSin, sem
sneiSir hjá byggSum héruðum, ájram eftir eySimörkinni til RauSahajsins
og til Arabíu. (Teikning: Sixt).