Heimilisblaðið - 01.01.1955, Blaðsíða 25
PALLI
Kalli og Palli voru svo heppnir að veiða stóreflis fisk, en voru svo þreyttir eftir viðureignina, að þeir
fengu sér blund í grasinu. En þá bar Mikkel ref þar að. Hann hafði líka verið á veiðum, en aðeins fengið
smásíli, og honum varð heldur en ekki gramt í geði, er hann sá stóra fiskinn þeirra Kalla og Palla/ Og
þegar þeir vakna, er fiskurinn þeirra orðinn að smásíli. Þeir labba niðurlútir heimleiðis, en Mikkel refur
stendur glottandi bak við tréð, því það var hann, sem hafði skipti á fiskunum.
Kalli situr við borðið, niðursokkinn í frímerkin sín. En þá kemur Palli allt i einu inn, og þegar dyrnar
opnast, verður svo mikill dragsúgur, að frímerkin fjúka öll út um gluggann. Kalli sér mjög mikið eftir
frimerkjunum sínum. „Getið þið ekki sótt þau fyrir hann?“ spyr Palli smáfuglana, og þeir þjóta strax
af stað á eftir frímerkjunum. Innan skamms koma þeir aftur með goggana fulia af frímerkjum og Iáta
þau á borðið. En á hitt borðið hafa þeir Kalli og Palli látið disk með kökum, sem þeir gefa fuglunum.