Heimilisblaðið - 01.01.1955, Blaðsíða 39
- Nei, aðeins einu sinni. Þrjá
mánuði.
- Jæja, þá vona ég, að þú minn-
ist þess í þetta skipti. Þú verður
settur inn, það þarftu ekki að efa.
Það varð þögn. Tíminn leið hægt.
Hans þurrkaði svitann af enni sér.
Hvers vegna gat þessi þorskur ekki
beðið hann afsökunar? Hann gæti
að minnsta kosti minnzt á föður
sinn og móður, og að hann iðraðist
verka sinna og ætlaði að bæta ráð
sitt. Þá ætlaði Hans að lofa honum
að fara! En maðurinn steinþagði.
Hann hafði sýnilega sætt sig við
örlögin.
- Langar þig ekki í neitt? spurði
María loksins.
- Jú, sagði Hans. Gefðu mér öl-
sopa. Ég er svo þurrbrjósta.
María flýtti sér niður í kjallara
°g kom aftur með könnu og þrjú
glös. Þrjú glös! Hún hugsaði um það
eHir á. Hún leit afsakandi á eigin-
mann sinn.
- Helltu í glösin, sagði hann.
- Þetta er dásamlegt öl, sagði
þjófurinn.
- Já, það er ekki sem verst, sagði
/--------------------------------------------------------------------------------------------------------------------\
Búnaðarbanki Islands
Sparnaður er upphaf auðs!
Kennið bömum að spara — með því að leggja aura
þá, sem þeim kynni að áskotnast, í
BúnaSarbanka Islands
Austurstræti 5 — Útibú Laugavegi 114.
Útibú Akureyri: Strandgötu 5.
María. Það bruggar enginn öl hér
í sveitinni nema við . ..
í sama bili heyrðust þrumur og
óveðrið skall á. Regnið lamdi utan
bæinn.
Þegar hlé varð á þrumunum
heyrðist greinilega blístur fyrir ut-
an gluggann.
- Hvað er þetta? sagði Hans og
stóð á fætur.
- O, það er ekkert, sagði þjófur-
inn róandi. Það er bara hann Al-
freð. Hann er félagi minn og stóð
á verði. Honum þykir auðvitað ekki
gaman að standa úti í regninu.
- Hamingjan góða! sagði Maria.
Heyrðu, Hans! Þarna eru mennirnir,
sem við þurfum að fá til þess að
hjálpa okkur við kartöfluuppsker-
una!
- Það er einmitt verk fyrir okk-
ur Alfreð, sagði þjófurinn og bætti
við: - Við skulum ekki taka hátt
kaup. Þið getið treyst okkur!
Hans Boesgárd klóraði sér í höfð-
inu. i
- Já, víst þurfum við á mönnum
að halda við kartöfluuppskeruna,
mælti hann. Kallaðu á Alfreð!
HEIMILISBLAÐIÐ
[37]