Heimilisblaðið - 01.09.1974, Page 42
ValhnetuíaisbúÖingui með portvíns-
vín berjasósu
Fais:
2 msk rasp
2 dl rjómi
2 egg
íVz tsk salt
Va tsk pipar
14 kg finnt hakkað kálfakjöt
14 kg. fínt hakkað svínakjöt
50—100 gr. gróft saltað vallmetukjarnar
ofurlítið af hænsnakjötsoði, e.t.v. ofur lítið
konjak eftir smekk.
Sósa:
1—2 msk smjör
ca 200 gr. sundurskorin vínber sem búið
er að taka steinan úr.
50 gr. valhnetukjarnar
soðið frá farsbúðingnum, e.t.v. meira soð,
ca 1 dl. rjómi og nökkrir dropar af sósulit.
Þurrt portvín eftir smekk, í sósuna.
Bleytið raspið í rjómanum, þeytið egg og
krydd út í og hnoðið kjötinu saman við. Þegar
farsið hefir verið látið standa dálítið, þá er
soðið hrært út í . Farsið má gjarnan vera nokk-
uð lint. Bragðbætt með koníaki (ef þið viljið).
Látið í smurt form eða eldfast fat. Bakist í ofni
við 2000 hita og lok haft yfir.
Brúnið vínberin aðeins í smjörlíki og látið
valhnetukjarnana útí og síið soðið frá farsbúð-
ingnum út í. Látið rjóma út í og látið sjóða í
nokkrar mínútur, litið aðeins með sósulit. —
Bragðbætið með portvíni, þegar búið er að
taka sósuna af plötunni. Má hella yfir búðing-
inn um leið og liann er framreiddur. Bragðast
vel með soðnum kartöflum sem e.t.v. eru hrist-
ar í bræddu smjöri með steinselju og sítrónu-
safa.
Jólamaiurinn
Við erum flest það vanaföst að við höfuni
sama jólamatinn ár eftir ár og er ekki nema
gott eitt um það að segja en hér eru tvær upp'
skriftir af salati sem nota má með ýmsum rétt-
um:
Avaxtasalat í mayjonnaisesósu.
. .
Maijonnaisesósa úr 100 gr. maijonnaise, 1
eggjarauða, 2 blöðum af matarlími uppleystum
í heitu portvíni, 2 dl. rjómi, sítrónusafi og syk-
ur eftir smekk.
1 lítil dós aprikósur
1 lítil dós grænar fíkjur (ef til er)
vínber
1—2 niðursneidd epli
rifið súkkulaði.
Eggjarauðurnar hrærast út í maijonnaisið,
matarlímið er látið út í og vel lirært í á meðan,
þeyttur rjóminn látinn út í og bragðbætt mcð
sítrónusafa og sykri. Þá er sósunni helt í lága
víða skál og ávextirnir látnir ofan á og að síð'
ustu er súkkulaðið rifið yfir.
Ávaxtahrísgrjón.
2 dl. hrísgrjón eru soðin (laus hrísgrjón) 1
4 dl. vatni. Safi sem hellt er vfir hrísgrjónin:
1 stórt glas af portvíni, 2—3 msk. sítrónusafn
e.t.v. sykur og safi frá dósaávöxtum.
1 dós (lítil af ananas
nokkrar mandarínur
sneiðar af 1—2 appelsínum
dálítið af vínberjum sem eru skorin i sund'
ur hvddar og saxaðar möndlur eftir smekk-
Það þarf helst að þurrka hrísgrjónin við
vægan hita í ofni, svo þau gcti drukkið mena
í sig af ávaxtasafanum. Þegar búið er að bland*1
vel saman hrísgrjónum og safa þá eru ávexbr
og möndlur látnar saman við. Má framreið*’
með rjóma.
166
HEIMILISBLAÐlí5