Jólablað félagsins Stjarnan í austri. - 24.12.1919, Síða 54
Mannkynsfræðarinn kemur til þess að flytja öllum þjóð-
um nýjan boðskap og hjálpa oss til að ráða fram úr hinum
óteljandi úrlausnarefnum, sem vér höfum verið að glíma
við, en árangurslaust. Hann mun og hjálpa oss að koma
þeim hugsjónum í framkvæmd í samfélaginu, sem vér höf-
um játað fylgi við í nærfelt 2000 ár. Hann mun einnig glæða
hjá oss löngunina, til þess að girnast það eitt, sem gott er.
Nú, þegar Mrs. Annie Besant kemur fram með þennan boð-
skap, þá hefur hún, vitandi eða óafvitandi, tekist hið sama
hlulverk á hendur og Jóhannes skírari. Hún hefur vissulega
hið sama starf með höndum og spámaðurinn, sem kendi
lýðnum úti á eyðimörkinni, því að hún segir, að koma
mannkynsfræðarans sé i nánd. Hún veit ekki hvar mann-
kynsfræðarinn muni koma fram, en hún bendir á það, að
ílestir hinir meiri háttar trúarbragðahöfundar hafi komið
fram í Austurálfu heims, og þess vegna séu nokkrar líkur til
þess, að hann komi þaðan. Bað er eins og maður geti ráðið
í það, að Mrs. Annie Besant gruni, að mannkynsfræðarinn
muni bera hörundslit Asíumanna, sem vér Vesturlandamenn
höfum meiri eða minni imugust á. Og það er ekki á því að
villast, hvern hún álítur þennan mannkynsfræðara vera,
jafnvel þótt vér vitum ekki, hvar eða hvenær hann muni
koma fram á meðal þjóðanna. Hún segir það skýrt og
afdráttarlaust, að mannkynsfræðarinn sé sá hinn sami meist-
ari, sem vér kristnir menn þekkjum sem Iírist.
Samkvæmt hinum áðurnefnda árangri af rannsóknum
Mrs. Annie Besants, hefur æfinlega mikill andlegur leiðtogi
komið til sögunnar, í þann mund sem nýr kynþáttur og ný
siöbótarmaöur. Hann mun losa heiminn við lcifar eingyðisins og
leggja hornsteininn undir helgidóm algyðistrúarinnar.«
52