Iðunn : nýr flokkur - 01.04.1925, Side 12

Iðunn : nýr flokkur - 01.04.1925, Side 12
90 Magnús Jónsson: IÐUNN Fimti dagur: Þennan dag fóru fram hátíðlegar blys- farir umhverfis Demeter-hofið í Elevsis og þar í nánd og var blysberinn sjálfur þar í broddi fylhingar. Auðvit- að átti þetta að minna á leit gyðjunnar að dóttur hennar. Sjötti dagur: Þennan dag var allra mest um dýrðir. Þá var líkneskja Jakkosar, sonar Seifs og Demeter, flutt í hátíðlegri skrúðgöngu frá Aþenu til Elevsis. jakkos er sama sem Dionysios eða Bakkus, og segir sagan, að hann hafi fylgst með móður sinni er hún leitaði að Per- sefóne. Líkneskjan og ýms heilög tákn voru flutt í þung- um vagni með fjórum hjólum (sem þá voru mjög sjald- gæfir) og drógu hann uxar, en fjöldi embættismanna stóð fyrir förinni. I skrúðgöngu þessari tóku þátt tugir þúsunda. Allir voru krýndir myrtusveigum, dönsuðu og börðu bumbur og æptu í sífellu: »]akkos, ó, Jakkos!« Stansað var á ákveðnum stöðum, þar sem sagan hermdi að einhverjir viðburðir hefðu gerst þegar gyðjan var á ferðinni. Leiðin er yfir 20 kílómetrar, og allir urðu að fara fótgangandi. Lýkúrg hafði svo boðið til þess að enginn munur skyldi sjást á fátækum og ríkum þennan mikla dag og lágu við þungar sektir. Kona Lýkúrgs braut þetta boð fyrst, þótt undarlegt megi heita, svo að hann varð sjálfur að borga sektina. En hann tók því svo, að hann gaf manninum, sem ljóstaði þessu upp, aðra upphæð jafnháa fyrir. Einhver hefir verið orðinn þreyttur þegar loks var komið til Elevsis. Var þá komin nótt, og síðari part leið- arinnar gengu menn með blys í höndum og gerði það förina enn áhrifameiri. Nóttina eftir fór svo fram í hof- inu vígslan til Iaunhelganna. Sjöundi dagur: ]akkos var fluttur aftur til Aþenu með sömu viðhöfn og áður. Þegar Pelopseyjar ófriðurinn stóð yfir og Aþena var

x

Iðunn : nýr flokkur

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Iðunn : nýr flokkur
https://timarit.is/publication/442

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.