Iðunn : nýr flokkur - 01.04.1925, Side 17

Iðunn : nýr flokkur - 01.04.1925, Side 17
IÐUNN Launhelgarnar í Elevsis. 95 Loks luktust hlið Heljar aftur og gat nú alt í einu að líta ólíka sýn. Innri hluti musterisins blasti við í ótrú- legum töfraljóma. Líkneskja gyðjunnar Demeter stóð þar í miðjum sal, en töfrandi hljómar og sætur hun- angseimur streymdi að áhorfendunum og hinir sælu andar stigu þar fagran dans í indælu umhverfi. Innsækjendurnir voru spurðir ýmsra spurninga af hof- goðanum, og voru þeim þá oft lögð svörin í munn fyrir fram. Höfð var við athafnirnar háheilög bók, sem köll- uð var »petróma< eftir steinhylki því, sem hún var geymd í. í hylki þessu voru og fleiri háhelgir dómar. Þriðja stig launhelganna var veitt næstu nótt, eða nóttina milli sjöunda og áttunda dagsins í hátíðahöldun- um. Var það hæsta stig launhelganna. En þó fengu þeir, sem æðstu embættin höfðu, svo sem hofgoðinn og hofgyðjan, enn þá æðri stig og þekkingu, sem þeim ein- um var geymd. Annars vita menn miklu minna um þetta stig, og það sem menn vita er bæði óljóst og á víð og dreif. Hámark þriðja stigsins mun hafa verið hin heilaga hjónavígsla, er táknaði samband Seifs og Demeter. Hof- goðinn og Hofgyðjan stigu þá niður í leynihelli og komu upp þaðan aftur, að því er virtist í björtu báli. Hélt hofgoðinn upp frammi fyrir innsækjendunum kornaxi. Slökt var á öllum blysum meðan þetta fór fram, og var svo á litið, að tímanleg og eilíf velferð væri undir því komin, að þessi táknlega hjónavígsluathöfn færi vel fram. Eins og nærri má geta var þetta lagt misjafnlega út af andstæðingum launhelganna. En engin ástæða er til þess að ætla, að nokkuð hafi skort á fullkominn hrein- leik athafnarinnar. Kristnir menn urðu einnig, eins og

x

Iðunn : nýr flokkur

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Iðunn : nýr flokkur
https://timarit.is/publication/442

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.