Iðunn : nýr flokkur - 01.04.1925, Page 23

Iðunn : nýr flokkur - 01.04.1925, Page 23
IÐUNN Anatole France. 101 ofurlítið hræddur við vinnukonu sína, sem hann þó ber virðingu fyrir og hefir umburðarlyndi með, af því hann veit, hve áreiðanleg og góð hún í rauninni er. Honum þykir gaman að tala við köttinn sinn, Hamilcar, og ræðurnar eru fullar af grískri speki og jafnvel formið er klassiskt, rétt eins og Hómer sjálfur hefði samið þær. Það er enginn efi á því, að Syl- vestre Donnard er í mörgu nauðalíkur Anatole France sjálfum og þess- vegna ættu allir, sem vilja kynnast ritum Anatole France, að byrja á því að lesa þessa bók, auðvitað helst á frönsku, því stíllinn er svo að- dáanlegur og svo ekta „franskur“, að sérstakar andans gáfur þarf til, að útleggja slíka bók. Mér hefir oft komið til hugar, þegar eg hef lesið „Góður snjór“ eftir ]ónas Hallgrímsson, að hann hefði getað náð gletnistón Anatole France’ sem í senn er nijúkur, hárbeittur og heimspekilegur. En ]ónas Hallgrímsson er löngu liðinn og hvern eigurn við nú hans líka að málsnild? En mikla málsnild þarf til að útleggja bækur Anatole France, því sögurnar, sem hann segir, eru einfaldar og

x

Iðunn : nýr flokkur

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Iðunn : nýr flokkur
https://timarit.is/publication/442

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.