Iðunn : nýr flokkur - 01.04.1925, Side 42

Iðunn : nýr flokkur - 01.04.1925, Side 42
120 Sigurður Nordal: IÐUNN Engar einbeitingaræfingar jöfnuðust þó á við gáturnar. Sá sem eitthvað hefur iðkað hugsanaæfingar, hvort sem það er að sjá aðeins hlut í huga sér eða velta fyrir sér einhverju viðfangsefni, veit að líkja má því einna bezt við, að hugurinn sé settur í tjóðurband, þar sem umhugsunarefnið er hællinn, en viljinn taugin. Hug- sunin hefur nokkurn leikvöll kringum efnið, en ef hún ætlar að láta hugsanasamböndin teygja sig í gönur, tek- ur tjóðurbandið í. Líkt er um að geta gátur. Það verður að fara í kring- um þær í einlægum krókum, en gera sér þó sífelt grein fyrir, hvert hringsólið stefnir. Þar reynir á þekkingu, hugkvæmni og skarpskygni, en ekki sízt þrautseigju og einbeitta athygli. Þegar gátur eru bornar upp fyrir óvönu fólki, stendur það fyrst alveg ráðþrota og við- burðalaust, og þegar því er gefin ráðningin, finst því hún oft röng og gátan tómur prettur. Það hefur aldrei lært að tylla tánum á hinar örfínu brýr líkinga, sem tengja saman fjarlæga og óskylda hluti. Af minnisæfingum eru til mörg kerfi og flest ónýt, en sum verr en það. Aðalreglan um minnið er ein og óbrotin: menn muna það, sem þeir vilja muna og þurfa að muna. Því velta þeir fyrir sér, setja það í tengsl við aðra hluti, sem fyrir eru, og festa það svo í huganum. Aftur á móti spillist minnið á því að læra margt og læra illa, Iæra það sem menn skilja ekki, að komi í neinar þarfir, hlaupa úr einu í annað og rifja aldrei neitt upp. Vísna og sagnaskemtun sveitabarna hefur verið ágæt tamning fyrir minnið. Að læra vísu er hæfilega erfið æfing, af því að formið veitir svo mikla stoð. Þegar ung- lingar síðan kveðast á og skanderast, rifja þeir upp aftur og aftur það sem þeir kunna og venjast á að hafa það

x

Iðunn : nýr flokkur

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Iðunn : nýr flokkur
https://timarit.is/publication/442

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.