Iðunn : nýr flokkur - 01.04.1925, Síða 80

Iðunn : nýr flokkur - 01.04.1925, Síða 80
158 Jón Björnsson: IÐUNN skal aldrei taka illa á móti þér framar — og alt af — alt af elska þig! — Þetta hefðir þú átt að segja í gærkvöldi, mælti Kéli með sorgblandinni ró. Nú er það of seint. Mín bíður nú ekkert annað en köld og vot gröfin. Hring- arnir okkar liggja hérna í vasa mínum. Það er best, að þeir fari sömu leiðina og eg. Þegar eg verð fisk- aður upp hérna einhvern næstu daga, allur marflóétinn og marglittuvafinn, þá getur Geiri sagt hvers vegna að þetta urðu endalok mín. Kéli lét nú fallast út fyrir borðstokkinn, en hélt sér þó enn með höndunum. Hann hafði áður sagt mér, að eg ætti að gefa eftir á kaðlinum, þegar hann segði mér til. Hann gæti farið í sjóinn alt upp á hálsinn. Veðrið væri hlýtt. Hann hagræddi sér utan á skipshliðinni augnablik, slepti svo takinu af borðstokknum og sagði um leið: — Gefðu nú eftir, Geiri minn, og sleptu svo endan- um, þegar eg segi þér. — Æ — Jesús minn! kveinaði Stína. Eg held, að þú drepir mig, Þorkell. Hún fór að æða um þilfarið og hrópaði: Guð á himnum — hvað á eg að gera! Þor- kell! Eg elska þig — veistu það ekki, maður! — Nei, sagði Keli. Mér fanst ekkert mót á því í gærkvöldi. Og elskan til mín hefir líklega ekki blossað þessi ósköp upp í nótt. Gefðu betur eftir, Geiri! Eg ætla aldrei að komast niður í sjóinn. Nú rauk Stína í einhverju ofboði í mig og bjóst til að rykkja af mér kaðlinum. En eg hafði svarið vini mínum trúa fylgd í þessu máli og stjakaði Stínu því frá mér. Þá laut hún út af borðstokknum og sá vatna um herðarnar á Kéla. Um leið sagði hann: Gefðu enn meira eftir, Geiri. Eg er nú bráðum ekki í tölu hinna lifandi.
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84
Síða 85
Síða 86
Síða 87
Síða 88

x

Iðunn : nýr flokkur

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Iðunn : nýr flokkur
https://timarit.is/publication/442

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.