Iðunn : nýr flokkur - 01.10.1925, Side 7

Iðunn : nýr flokkur - 01.10.1925, Side 7
IÐUNN Elsta óöal á íslandi. 229 maður frá 1156 til dánardags 1170. LögsögumannsstarfiB var þá mesta virðingarstaðan á landinu og völdust ekki til þess aðrir en hinir ágætustu menn. Snorri hefir verið friðsamur maður og kyrlátur, eins og best sést af því, að honum tekst að sitja algjörlega hjá deilum nágranna sinna Hvamms-Sturlu og Einars Þorgilssonar. Eftir lát Snorra búa synir hans á Skarði, Narfi og Þorgils. Voru þeir báðir prestvígðir. Þorgils Snorrason gefur nálægt 1197 Sighvati Sturlusyni hálft Þórsnes- ingagoðorð. Annars er þeirra bræðra lítið getið. Þorgils deyr 1201 og Narfi árið eftir, 1202. Sonur Narfa Snorrasonar var Snorri Narfason, Skarðs- Snorri eða Snorri Skarðsprestur eins og hann tíðast er nefndur. Hann bjó á Skarði og segir Sturlunga að hann hafi verið manna auðugastur í Vestfjörðum. Snorri var hinn mesti ágætismaður. Er hans oft getið og oftast að því, að koma sáttum og griðum á með mönnum í róstum Sturlunga-aldarinnar, eða við gerðardóma til að jafna mál manna. Glögt dæmi um góðgirni hans er það, að 1241 býður hann Sturlu Þórðarsyni að ráða fyrir Reyk- hólum, hvort sem hann vildi búa þar sjálfur eða fá þá Orækju Snorrasyni. Gerði hann þetta til þess, að betur greiddist sættir með þeim Orækju og Sturlu, og var Órækja þó ekki æskilegur landseti eða nágranni. Annars er þess getið, að hann væri hinn mesti ástvin Sighvats Sturlusonar og sonar hans Sturlu. Voru synir hans oft í bardögum og herferðum með Sturlungum, og einn þeirra, Bárður, féll á Reykhólum með Tuma Sighvats- syni. Skarðs-Snorri andaðist 1260 og hefir þá verið orðinn gamall. Af sonum Skarðs-Snorra koma tveir hér við sögu, Bjarni og Narfi. Bjarni Snorrason býr á Skarði eftir föður sinn. Hans

x

Iðunn : nýr flokkur

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Iðunn : nýr flokkur
https://timarit.is/publication/442

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.