Iðunn : nýr flokkur - 01.10.1925, Blaðsíða 9
IÐUNN
Elsta óöal á lslandi.
231
föður sinn. Ormur hefir verið ungur er faðir hans lést.
Hans er fyrst getið 1344, þá fer hann utan með Guð-
mundi bróðir sínum. Ormur bjó á Skarði og kemur
mjög við sögur. Tvisvar var hann lögmaður, 1359—1368
og aftur 1374—1375, og hirðstjóri var hann um eitt
skeið. Á fyrri lögmannsárum hans, 1362, var hann í
norðurför Smiðs Andréssonar og í Grundarbardaga.
Fékk Ormur kirkjugrið í bardaganum og gat sér lítinn
orðstír fyrir framgönguna. Að því lítur þessi vísa í kvæði
Snjólfs skálds um Grundarbardaga:
Frá ek stála storm
mjök sturla Orm,
þar er kysti kyrr
kirkjunnar dyrr,
kvaö liann þurfa þess
at þylja vers;
þó er bænin best
honum byrgi mest.
Tveggja sona Orms skal gefið hér, Guttorms og Guð-
mundar. Guttormur Ormsson bjó í Þykkvaskógi og var
veginn í Snóksdal 1381. Vegandinn hét Þorsteinn ]óns-
son en ókunnugt er um tildrög vígsins. Guðmundur
Ormsson var ribbaldi og óeirðamaður. Á jólunum 1385
fór hann með Eiríki nokkrum Guðmundssyni, er ef til
vill hefir verið sonur Guðmundar föðurbróður hans, að
Þórði nokkrum jónssyni og tóku hann höndum. Komu
þeir síðan Ormi í málið, ef hann þá ekki hefir verið við
það riðinn frá upphafi. Ormur nefndi dóm yfir Þórði.
Var Þórður dæmdur til dauða og höggvinn eftir dóm-
inum. Hverjar sakir þeir feðgar hafa gefið Þórði greinir
ekki, en geta má þess til að Þórður hafi verið bróðir
Þorsteins þess er Guttorm vó, og að aftaka hans hafi
verið hefnd. Þetta verk þótti níðingsverk og mæltist illa