Iðunn : nýr flokkur - 01.10.1925, Page 34

Iðunn : nýr flokkur - 01.10.1925, Page 34
256 Einar H. Kvaran: IÐUNN Og við þetta atriði bænarinnar hnýtir hann þessum um- mælum: »Ef þér fyrirgefið mönnunum misgerðir þeirra, þá mun yðar himneski faðir einnig fyrirgefa yður. En ef þér fyrirgefið ekki mönnunum þeirra misgerðir, mun faðir yðar ekki heldur fyrirgefa yðar misgerðir* (Matt. 6, 14—15). Hann varar alvarlega við hörðu dómunum, af því að þeir eru af sömu rótum runnir sem fyrirgefn- ingarleysið. »Dæmið ekki, til þess að þér verðið ekki dæmdir; því að með þeim dómi, sem þér dæmið, verðið þér dæmdir, og með þeim mæli, sem þér mælið, verður yður mælt. (Matt. 7, 1—2). Hafi nokkur lifað samkvæmt þessari hugsun, þá er það hann, sem boðaði bersyndugu konunni fyrirgefning, »því að hún elskaði mikið* — hann, sem sakfeldi ekki hór- seku konuna, er átti að grýta eftir skýlausu lögmáli Móse, af því að allir væru syndarar — hann, sem í kvölunum á krossinum mælti orðin: »Faðir, fyrirgef þeim, því að þeir vita ekki, hvað þeir gera«. Eftir hans kenningu er hefndarhugurinn ekki til í guði, og þar af leiðandi ókleift um tíma og eilífð að komast í samræmi við guð, nema hefndin upprætist úr hugum mannanna, og fyrirgefningarfúsleikinn komi í staðinn. Þetta er því eftirtektarverðara, sem þessi kenning fer mjög í bág við hugmyndir Gyðinga á dögurn ]esú um rétt og rangt. Ein af þeirra grundvallarsetningum var: »Auga fyrir auga og tönn fyrir tönn«. Það getur þá ekki verið nokkur vafi á því, að ef það er nokkur einn, sem ber ábyrgð á því, að fyrirgefning- unni er haldið að mönnunum, hvort sem það er gert af mér eða öðrum, þá er það Jesús frá Nazaret. Eg geri ráð fyrir, að hann sé fær um að rísa undir þeirri ábyrgð — hvað þungan áfellisdóm sem hann fær fyrir það hjá Sigurði Nordal. Og svo fjarri er það mér sem austrið

x

Iðunn : nýr flokkur

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Iðunn : nýr flokkur
https://timarit.is/publication/442

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.