Iðunn : nýr flokkur - 01.10.1925, Síða 41
IÐUNN
Kristur eða Þór.
263
lega ókristin hugsun. Að minsta kosti er hún þveröfug
við kenningar ]esú og hins mikla rithöfundar frumkristn-
innar, Páls postula.
S. N. boðar guð »sem unga hetju, sem berst blóðug-
ur og vígmóður við dreka hins illa« og fyrirgefur ekki.
Þroski hans er ekki óendanlegri en »myrkravöldin sem
hann berst við«.
Það er áreiðanlegt, að þessi blóðugi guð, sem aldrei
vinnur sigur á því illa, er ekki sá faðir vor á himnum,
sem ]esús Kristur boðaði mönnunum, né heldur sá guð,
sem nýja testamentið talar um, að sé »yfir öllum og
með öllum og í öllum«. Þessi kenning er ekki kristin.
Hún er heiðni. Þessi guð S. N. er Þór. Ofurlítið fægð-
ur og litaður Þór.
S. N. fræðir oss um það, að einhverjir jafnaldrar hans
líti líkt á þessi mál eins og hann, »þótt fáir hafi gert
öðrum það ljóst og sumir ekki sjálfum sér«. Eg skal
ekkert um það segja. Eg þekki ekki þessa menn. Eg
veit ekki, hvað gáfaðir þeir kunna að vera, sem aðhyll-
ast í meira lagi viðsjárverðar kenningar, án þess að hafa
gert sjálfum sér það ljóst — og þar af leiðandi fráleitt
neinum öðrum, nema S. N. Allra síst veit eg, hver af-
reksverk eða afglöp þeir eiga eftir að fremja í veröldinni.
En hinu mótmæli eg afdráttarlaust, að af nokkru
verði ráðið, að þeir séu fulltrúar þess tímabils, sem nú
er að renna upp. Veröld vor hefir, einmitt á þessari öld,
fengið nokkuð greypilega reynslu þess, hvað það kostar,
að leggjast alveg undir höfuð að fara eftir kenningum
]esú Krists. Það hefir kostað hana miljónir af manns-
lífum, óumræðilegar líkamlegar og andlegar þjáningar og
botnlaus ógrynni af auðæfum. Bestu og vitrustu menn
veraldarinnar eru nú að reyna að verja vitsmunum sín-
um til þess að græða hin djúpu sár þjóðanna. Og þeir