Iðunn : nýr flokkur - 01.10.1925, Side 42

Iðunn : nýr flokkur - 01.10.1925, Side 42
264 Einar H. Kvaran: Kristur eða Þór. ÍÐUNN sjá engin önnur ráð en niðurfall saka, að svo miklu leyti, sem unt er. Þeir sjá engin önnur ráð en reyna að uppræta ofbeldisviljann og hefndarhugann. Þeir sjá engin önnur ráð en að kenna mönnunum að fyrirgefa. Þeir trúa áreiðanlega ekki á blóðugan guð. Einar H. Kvaran. Tvö kvæði eftir Böðvar Gitðjónsson frá Hnífsdal. Allie. Dagur líður, nóttin nálgast. Næturlíf er öllu fegra. Segðu mér það, væna vina. Veistu nokkuð yndislegra? Ljósið þver, en rökkur ræður. Rósamál af vörum streymir. Hátíð, fólgna í helgi nætur, hugann unga stöðugt dreymir. Hár þitt ljóst, þín leiftrandi augu, laða hug minn, seiða, ginna. I þér hef eg einni fundið æðstu fylling vona minna. Við, sem unnum lífi og ljóðum, listum, fegurð, söng og gleði,

x

Iðunn : nýr flokkur

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Iðunn : nýr flokkur
https://timarit.is/publication/442

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.