Iðunn : nýr flokkur - 01.10.1925, Blaðsíða 47
IÐUNN
Brot úr feröasögu.
269
stigu á skipsfjöl og vonum bráðar er lagtafstað. Alt gengur
hljóðlega og greiðlega. Hér eru ekki org og óhljóð eins
og niður við »01ympic«, þegar eg fór frá New-York.
Það dimmir af nóttu og landið hverfur. Nú er tími til
að skoða sig um og átta sig.
»Montcalm« er »lítið« skip, 16,400 smálestir, en
það er útbúið með öllum þeim þægindum, er nú eru
gerðar kröfur til. Það varð mér svo hugþekt, að eg
má til að fara um það nokkrum orðum. »Montcalm«
er heitið eftir franskri hetju, er á þeim árum, er Canada
var ungt land og áhöld voru þar um yfirráð milli Frakka
og Englendinga, stýrði frönsku herliði og varði Eng-
lendingum landið, uns hann var ofurliði borinn og féll
í Quebec, við mikinn orðstír. Nú lætur enskt félag eitt
sinna beztu skipa bera nafn hans. Það eru viðbrigði
að koma af Lagarfossi á »Montcalm«. Hér er rúmlegt
og alstaðar íburðarlaust skraut. Þilför eru mörg hvert
niður af öðru. Neðst er borðsalur, á hinum þilförunum
eru samkvæmis- lestrar- og reyksalir. Tala farþegaklefa
er »legio«. Hér þurfa konurnar engar áhyggjur að hafa
af krökkunum, þau hafa sérstök leikherbergi og leggur
skipið til stúlkur að líta eftir þeim. Læknir er hér og
hjúkrunarkonur.sölubúð og rakarastofa og hárgreiðslustofa,
og í prentsmiðju skipsins k'emur daglega út fréttablað.
Næsti dagur rann upp heiður og fagur. Það er sunnu-
dagur. Guðsþjónusta er haldin; þeim fagra sið fylgja
öll ensk skip. Nú erum við á ferð meðfram ströndum
írlands. Landið kemur kunnuglega fyrir sjónir. Klettótt
fjallshlíð með sjó fram, en inni í landi snævi þaktir
tindar. En brátt hverfa ystu skerin við Londonderry.
Landið fjarlægist og sígur í sjó. Nú liggur Atlantshafið
framundan með breiðum, sólgáruðum bylgjudölum. Flestir
hafa flýtt sér að ná í stól og njóta sólfarsins á þiljum uppi.