Iðunn : nýr flokkur - 01.10.1925, Síða 50
272
Inga L. Lárusdóttir:
iðunn
komið 1000 km. veg innan frá Ontario-vatni, með einna
75 metra fallhæð, ein stærsta skipgenga á heimsins. Nú
grófu allir upp stóla sína, þetta voru síðustu forvöð að
nota þá. Brátt tók þoka að rjúka upp úr fljótinu, hún
tók rétt í miðjar hlíðar, en var svo þétt hið neðra að
eigi var viðlit að halda áfram á jafn-fjölfarinni leið. Hún
raskaði áætlunum okkar. I stað þess að sigla upp til
Montreal var ákveðið að taka járnbraut. Skipuðu konur í
Montreal svo fyrir, þær áttu að taka móti okkur og
höfðu mikinn viðbúnað.
Quebec er fyrsti bærinn, sem allir, er þessa leið fara,
koma til. Stendur hann nokkru ofar en fjörður og fljót
mætast. Eiga fáir, eða engir bæir í Canada jafnmikla
sögu og hann. Hér er elsta landnámið, sé landnám Þor-
finns Karlsefnis eigi talið með. Fyrstu landnemarnir voru
Frakkar; er talið þeir setjist þar að um 1600. 1608 hefst
bygging Quebec, var bærinn aðalvígi Frakka og miðstöð
verslunar þeirra við frumbyggja landsins, Indíána. Hing-
að var mörg auðæfi að sækja, einkum grávöru. Vildu
Englendingar því sitja að þeirri krás líka, og stofnuðu
hið alkunna Hudsonflóa-félag, er hafði bækistöð nokkru
norðar. Urðu sífeldar skærur með Englendingum og
Frökkum, uns Englendingar báru hærra hlut. Arið 1763
er yfirráðum Frakka lokið.
Héröðin öll, á austurströnd Canada bera miklar menj-
ar Frakka. Frönsk tunga er töluð jafnhliða enskri. Skólar
eru á báðum málum. Blöðin jöfnum höndum frönsk og
ensk. Byggingarlagið að miklu leyti frakkneskt. Er talið
að 80°/o íbúa Quebec-fylkis séu af frönsku bergi brotnir.
Þjóðstofninn er hraustur og þróttmikill. Heima fyrir eiga
Frakkar við að stríða seindrepandi fólksfækkun, vegna
þess hve fæðingum fækkar. Ibúum hins franska Canada
fjölgar ört, og er þó lítill innflutningur. Fransk-canadiskir