Iðunn : nýr flokkur - 01.10.1925, Page 58
280
Inga L. Lárusdóttir:
IÐUNN
skera hinar eru hringmYnduð svæði — circles. — Eru
þar trjá- og blóm-reitir. Meðfram öllum húsaröðum eru
há, skuggarík tré. Hér syðra er sumarhiti mikill. Það er
auðvelt að rata. Strætin eru auðkend með bókstaf
þau, er liggja austur og vestur, með tölustaf, þau er
liggja norður og suður. Húsanúmirin hlaupa á hundraði.
Hver ferhyrningur — block — milli fjögurra stræta
hefir sitt hundrað. Eg bý t. d. á nr. 1633 H stræti á
horni 17. strætis. Tölurnar þar fyrir ofan vantar. Hinu
megin við götuna tekur við næsta hundrað.
Washington á enn eigi langa sögu. Eftir frelsistríðið
sat þing Bandaríkjanna í Philadelphia, en hélst þar eigi
við vegna óeirða hermanna, er eigi höfðu fengið mála
sinn greiddan. Var þá ákveðið að velja annan þingstað,
og var hann kjörinn, þar sem hin breiða lygna Potomac-á
liðast _um landið. Þar lagði George Washington, árið
1791 hornsteininn að framtíðar-höfuðborg hins unga lýð-
veldis. Hingað hefir síðan safnast alt það, er lýtur að
stjórn þessa mikla sambandsríkis. Hingað senda öll fylk-
in fulltrúa sína. Hér eiga allar þjóðir heimsins, er til
sjálfstæðra þjóða vilja teljast, sendiherra, og hafa þeir,
eins og venja er til, margt manna í sinni þjónustu. I
Washington er ótal vandamálum ráðið til lykta, hún er
álíka samkomustaður vestan hafsins og Genf er austan.
Þinghúsið — The Capitol — er risavaxin bygging,
er ber hátt yfir bæinn, uppi á Capitolhæðinni. Er sú
bygging eiginlega þrískift. Gamla Capitol, sem Washing-
ton lagði hornsteininn að árið 1793, bygt úr sandsteini,
og tvær hliðarálmur, sín til hvorrar handar, bygðar löngu
seinna, af hvítum murmara. í annari þeirra hefir öld-
ungaráðið samkomur sínar, en fulltrúadeildin í hinni. En
hér eru að eins sjálfir þingsalirnir og nefndaherbergi,
en báðar deildir hafa skrifstofur sínar í sérstökum stór-